Innlent

Innkalla Blomsterbergs citronfromage

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Varan sem um ræðir.
Varan sem um ræðir.
Matvöruverslunin Krónan hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur innkallað Blomsterbergs citronfromage vegna ómerktra ofnæmis- og óþolsvalda (hnetur og möndlur).

Samkvæmt tilkynningu auðkenna eftirfarandi upplýsingar vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Blomsterbergs

Vöruheiti: Blomsterbergs citronfromage, 116 g

Strikanúmer: 5420047405739

Nettómagn: 116 g.

Lotunúmer: Öll lotunúmer.

Best fyrir: Allar dagsetningar.

Framleiðandi: Food N Joy SA

Framleiðsluland: Belgía.

Innflytjandi: Krónan ehf., Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.

„Hnetur, þ.m.t. heslihnetur, og afurðir úr þeim eru á lista yfir ofnæmis- eða óþolsvalda.  Tekið skal fram að varan er skaðlaus þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir hnetum og afurðum úr þeim.

Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir hnetum eða möndlum og afurðum úr þeim eru hvattir til að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt,“ segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×