Innlent

Ólafía fer ekki aftur fram í VR

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Ólafía tapaði fyrir Ragnari Þór Ingólfssyni í formannskosningu 2017.
Ólafía tapaði fyrir Ragnari Þór Ingólfssyni í formannskosningu 2017. Fréttablaðið/GVA
„Það er rétt að það hefur verið leitað til mín um að bjóða mig aftur fram til formennsku í VR, en ég var búin að taka þá skýru afstöðu að það myndi ég ekki gera og hún stendur, segir Ólafía B. Rafnsdóttir, fyrrverandi formaður VR. Hún tapaði fyrir Ragnari Þór Ingólfssyni sem bauð sig fram gegn henni í formannskjöri 2017.

Búist er við að stjórnarkjör fari fram í mars en ekki hefur enn verið auglýst eftir framboðum og framboðsfrestur ekki kynntur. 

Ólafía segir að þrátt fyrir að mikið hafi verið þrýst á sig sé hún ekki tilbúin að fórna öðrum fjórum árum í þetta verkefni. „Ég skilaði mínum fjórum árum og er stolt af þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×