Erlent

Óttast að forsetaframboð Starbucks-forstjóra tryggi Trump endurkjör

Kjartan Kjartansson skrifar
Schultz er 65 ára gamall og hefur fram að þessu verið demókrati. Hann segist nú skoða að bjóða sig fram sem óháður frambjóðandi.
Schultz er 65 ára gamall og hefur fram að þessu verið demókrati. Hann segist nú skoða að bjóða sig fram sem óháður frambjóðandi. Vísir/EPA
Howard Schultz, fyrrverandi forstjóri kaffihúsakeðjunnar Starbucks, segist íhuga alvarlega að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna sem óháður frambjóðandi á næsta ári. Demókratar eru sagðir óánægðri með Schultz þar sem framboð hans gæti tryggt Donald Trump forseta endurkjör.

Schultz , sem hætti hjá Starbucks um mitt ár í fyrra, tilkynnti um þetta í tísti í gær. Sagðist hann myndu bjóða sig fram óháð flokkum og sækja inn á miðjuna.

„Flokkarnir okkar tveir eru sundraðri en nokkru sinni fyrr. Ræðum hvernig við getum sameinast og skapað tækifæri fyrir fleira fólk,“ tísti Schultz sem hætti hjá Starbucks um mitt síðasta ár.

Í viðtali við fréttaskýringarþáttinn 60 mínútur fullyrti Schultz að hvorugur stóru flokkanna gerði það sem til þyrfti fyrir bandarísku þjóðina heldur stunduðu þeir „hefndarstjórnmál“ á hverjum degi.

Mögulegt framboð Schultz hefur vakið litla hrifningu hjá demókrötum sem óttast að hann gæti tekið atkvæði af frambjóðanda þeirra á næsta ári. Það gæti verið nóg til þess að Trump forseti nái endurkjöri þrátt fyrir verulegar óvinsældir.

Julián Castro, einn frambjóðenda í forvali demókrata, fullyrti í viðtali við CNN-fréttastöðina í gær að framboð Schultz væri „besta von“ Trump um að ná endurkjöri.

Schultz, sem hefur verið demókrati fram að þessu, gaf lítið fyrir þær áhyggjur í viðtalinu við 60 mínútur. Sagði hann öfga fara vaxandi í báðum flokkum.

„Ég vil sjá bandarísku þjóðina vinna. Ég vil sjá Bandaríkin vinna. Mér er sama hvort þú ert demókrati, óháður, frjálshyggjumaður, repúblikani. Færðu mér hugmyndir þínar og ég verð óháður einstaklingur sem tek þessum hugmyndum fagnandi vegna þess að ég er á engan hátt í slagtogi við stjórnmálaflokk,“ sagði Schultz.

Ekki gefið mál að Schultz tæki frekar atkvæði af demókrötum en Trump

Ekki eru þó allir sannfærðir um að öruggt sé að Schultz tæki frekar atkvæði af demókrötum en Trump. Þannig bendir Nate Silver, ritstjóri Five Thirty Eight, á að eitt helsta kosningamál Schultz sé ráðdeild í ríkisrekstri og að draga úr halla ríkissjóðs. Það hefur verið hefðbundið stefnumál bandarískra repúblikana undanfarin ár.

„Til dæmis, ef Schultz keyrir á þessum skilaboðum er þá ekki aðalkaupandinn fjármálalega íhaldssamur kjósandi sem er líkar persónulega illa við Trump en hefur áhyggjur af því að demókratar séu alltof langt til vinstri? Trump þarf líklega á þessum kjósendum að halda til að vinna. Nú geta þeir kosið Schultz,“ tísti Silver í gær.

Bendir hann ennfremur á sögu óháðra framboða. Þannig hafi Ralph Nader vissulega tekið atkvæði af demókratanum Al Gore í kosningunum árið 2000 enda hafi hann boðið sig fram til vinstri við Gore. Miðjusæknari óháðir frambjóðendur hafi hins vegar tekið atkvæði tiltölulega jafnt af flokkunum tveimur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×