Enski boltinn

Conor: Ole Gunnar Solskjær er sérstakur maður

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor er aðdáandi Solskjær.
Conor er aðdáandi Solskjær. vísir/getty
Írski bardagakappinn Conor McGregor er stuðningsmaður Man. Utd og hann gæti ekki verið ánægðari með Norðmanninn Ole Gunnar Solskjær sem hefur blásið nýju lífi í leik United.

„Ole Gunnar Solskjær er sérstakur maður. Ofurvaramaður, leikmaður og stjóri. Sturlun,“ skrifaði Conor á Twitter og bætti við.

„Maður finnur ástríðuna sem hann hefur fyrir félaginu og sögu þessu. Það ljómar af honum stoltið er hann útskýrir skyndisóknir félagsins í gegnum árin. Vá!“





Conor endurbirti svo tíst þar sem er mynd af honum í grárri treyju United-treyju sem hann keypti fyrir vasapeningana sína er hann var 8 ára.





Eins og við mátti búast kunni Man. Utd vel að meta stuðninginn frá UFC-stjörnunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×