Viðskipti erlent

Aftur var hægt að næla sér í hræódýra miða á fyrsta farrými vegna mistaka

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Flugfélagið á í talsverðum erfiðleikum.
Flugfélagið á í talsverðum erfiðleikum. Getty/Rodrigo Machado
Í annað sinn á innan við tveimur vikum nældu heppnir viðskiptavinir flugfélagsins Cathay Pacific sér í hræódýra miða á fyrsta farrými vegna mistaka í bókunarkerfi flugfélagsins. Aftur mun flugfélagið ekki fara fram á það að fullt verð verði greitt fyrir miðana. BBC greinir frá.

Vökulir viðskiptavinir gátu nælt sér í flugmiða á fyrsta farrými á leið félagsins frá Hong Kong til Lissabon í Portúgal, í gegnum London, fyrir aðeins 1.512 dollara, því sem nemur 180 þúsund krónum. Sambærilegur flugmiði með stoppi í Frankfurt á að kosta 16 þúsund dollara, um 1,9 milljónir króna. Miðarnir sem um ræðir voru í boði á vefsíðu félagsins í gær.

Flugfélagið segir að gerð hafi verið mistök sem verði rannsökuð. Í byrjun ársins gátu viðskiptavinir Cathay nælt sér í miða í flug á milli Víetnam og New York, fram og til baka, í ágúst næstkomandi sem viðskiptavinirnir greiddu um 675 bandaríkjadali fyrir, eða um 78 þúsund íslenskar krónur. Mistök voru þá einnig gerð að sögn flugfélagsins.

Mistökin eru sögð kóróna erfitt rekstrarár hjá Cathay Pacific, sem hefur verið rekið með tapi undanfarin tvö ár. Félagið, sem gerir út frá Hong Kong, er sagt hafa átt erfitt með að bregðast við síharðnandi samkeppni í fluggeiranum, ekki síst með tilkomu fjölda lággjaldaflugfélaga í Suðaustur-Asíu.

Þá rataði flugfélagið í fréttirnar í september síðastliðnum þegar það neyddist til að senda eina vélina sína aftur í sprautun. Ástæðan var innsláttarvilla í nafni félagsins, fyrir vikið stóð „Cathay Paciic“ á vélinni.

Mánuði síðar var gerð tölvuárás á höfuðstöðvar flugfélagsins og náðu tölvuþrjótar að stela persónuupplýsingum næstum 9,4 milljón viðskiptavina Cathay Pacific.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×