Lífið

Kim Kardashian og Kanye West eiga von á dreng

Sylvía Hall skrifar
Systurnar voru hressar.
Systurnar voru hressar. Vísir/Getty
Kim Kardashian var í viðtali í Watch What Happens Live hjá spjallþáttastjórnandanum Andy Cohen á dögunum ásamt systrum sínum. Í viðtalinu staðfesti Kim að staðgöngumóðir hjónanna gengi með dreng.

Cohen spurði hvort þau hjónin vissu kyn barnsins og svaraði Kim einfaldlega: „Við vitum það, það er strákur.“ Svar Kim kom systur hennar Kourtney verulega á óvart og hrópaði hún af undrun þegar systir hennar uppljóstraði kyninu.

„Ha?,“ sagði Kourtney og bætti svo við að hún vissi að þau ættu von á dreng en það kom henni verulega á óvart að systir hennar hafi uppljóstrað því í þættinum.

Marga hefur grunað að hjónin ættu von á dreng en fyrir eiga þau tvær dætur og einn son. Kim sagðist þó halda að margir vissu það þar sem hún hafði orðið drukkin í jólaveislu fjölskyldunnar, sagt einhverjum frá því og gæti nú ekki munað hverjum hún hafi sagt það.

„Ég verð aldrei drukkin,“ bætti Kim við að lokum.


Tengdar fréttir

Kim Kardashian setur reglur um símanotkun

Kim Kardashian segist ráðfæra sig við barnasálfræðing varðandi símanotkun barna til að vera vel undirbúin þegar hennar börn ná aldri til að byrja að nota samfélagsmiðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×