Innlent

Eldur í íbúðarhúsi á Ísafirði

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Vísir/vilhelm
Eldur kom upp í íbúðarhúsi á Ísafirði skömmu eftir miðnætti í nótt. Talsvert tjón varð á húsinu en engin slys urðu á fólki, að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Ísafirði. Mbl greindi fyrst frá.



Fólkið kom sér sjálft út úr húsinu en slökkviliðið á Ísafirði slökkti eldinn. Ekki er vitað um eldsupptök en lögregla fer nú með rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×