Innlent

Katrín: „Við verðum ekki öll friðar­verð­launa­hafar Nóbels“

Elín Margrét Böðvarsdóttir og Atli Ísleifsson skrifa
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Allir geta lagt sitt af mörkum til að gera samfélagið aðeins betra og heiminn aðeins fallegri að sögn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Hún gerði horfur á vinnumarkaði, loftslagsmál og tæknibreytingar einnig að umræðuefni í áramótaávarpi sínu í gær.

Katrín ræddi í ávarpi sínu um nauðsyn þess að tryggja almenningi lífskjarabata með því að auka jöfnuð og hagsæld.

„Fullveldissagan er saga framfara, raunar er allt svo gjörbreytt að stundum er eins og 19. öldin hafi aldrei verið. En íslenska samfélagið hefur þó aldrei aðeins snúist um efnahagslega velferð eingöngu heldur almenna velferð og jöfnuð.”



Áskoranir framundan

Katrín gerði þær áskoranir sem eru framundan eru á sviði loftslagsmála og tæknibreytinga einnig að umræðuefni sem og ferðaþjónustuna, eina stærstu atvinnugrein og tekjulind þjóðarinnar.

„Hingað kemur fólk til að berja einstaka náttúru augum. Hluti af sjálfbærri ferðaþjónustu er að vernda þessa sömu náttúru fyrir utan þá skyldu sem á okkur hvílir að vernda náttúruna og víðernin þeirra fyrir komandi kynslóðir. Vegna þess að sala náttúruauðlinda er og verður hverful atvinnugrein hefur aldrei verið mikilvægara að við Íslendingar horfum til hugvits og nýsköpunar til lengri tíma.”

Þá minnti hún á það fólk og sjálfboðaliða sem eru reiðubúnir að koma öðrum til bjargar á nóttu sem degi en það sýni hvernig allir geti haft áhrif, samfélaginu til góða. 



Gerum samfélagið betra

„Við verðum ekki öll friðarverðlaunahafar Nóbels en við, sem eigum því láni að fagna að búa í einu friðsælasta landi heims, getum öll lagt okkar af mörkum, munað hvert eftir öðru, hlúð hvert að öðru og lagt okkar lóð á vogarskálarnar til að gera samfélagið aðeins betra; heiminn aðeins fallegri,” sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í áramótaávarpi sínu í gær.

Lesa má ávarpið í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×