Enski boltinn

Fenerbache fær ekki Lallana

Anton Ingi Leifsson skrifar
Adam Lallana.
Adam Lallana. vísir/getty
Heimildir Sky Sports fréttastofunar herma að miðjumaðurinn Adam Lallana verði ekki lánaður út í janúarglugganum sem opnaði á dögunum.

Lallana hefur verið orðaður burt frá Liverpool undanfarna daga og vikur en hann hefur verið að koma til baka eftir erfið meiðsli. Hann hefur einungis byrjað tvo leiki í deildinni það sem af er.

Nokkur félög voru sögð á eftir Lallana og þar á meðal Fenerbache í Tyrklandi en þar er Damian Cornolli yfirmaður knattspyrnumála. Það verður þó ekkert úr því.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er sagður ætla að nota Lallana meira á komandi vikum enda Liverpool í baráttu á toppnum í deildinni, í bikarnum og í Meistaradeildinni.

Liverpool losaði tvo leikmenn í gær er Dominic Solanke og Nathaniel Clyne fóru til Bournemouth. Solanke var seldur en Clyne var lánaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×