Innlent

Tilkynnti um bílveltu en stoppaði ekki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr Þrengslum í morgun.
Úr Þrengslum í morgun. Brunavarnir Árnessýslu
Brunavarnir Árnessýslu brýna fyrir vegfarendum mikilvægi þess að stoppa og kanna málin komi það fyrst að slysavettvangi. Tilefnið er bílvelta í Þrengslum í morgun en tilkynning barst um klukkan hálf átta í morgun. Mikil hálka var á þeim slóðum.

Í tilkynningu frá brunavörnum segir að umfang slyssins hafi ekki verið að öllu leyti ljóst þar sem innhringjandi stoppaði ekki á vettvangi.

„Slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu frá Þorlákshöfn fóru á vettvang með klippibúnað auk þess sem ákveðin hópur dagvinnumanna frá slökkvistöðinni á Selfossi lögðu af stað. Auk þessa fóru tæki frá lögreglunni á Suðurlandi og tveir sjúkrabílar frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á vettvang,“ segir í tilkynningunnui.

Einn maður reyndist hafa verið í bifreiðinni og hafði hann ekki hlotið teljandi meiðsl. Ekki þurfti að beita klippum til þess að ná honum út.

„Við viljum nota tækifærið og brýna fyrir vegfarendum mikilvægi þess að fólk stoppi og kanni málin komi það fyrst að slysavettvangi. 

Það er mjög skiljanlegt að fólk geti óttast það sem fyrir augu ber og geti mögulega efast um getu sína til þess að veita hjálp en allir geta alltaf gert eitthvað. Þó ekki sé nema að gefa greinagóða lýsingu til Neyðarlínu 112, svo hægt sé að boða rétt viðbragð í slysið,“ segir í tilkynningunni.

„Stundum þurfa ótrúlega margar hendur að koma að einu slysi og stundum þarf mjög lítið viðbragð. Þurfi lítið viðbragð þá eru ekki eins mörg tæki send út í umferðina á forgangsakstri. Þó forgangsaksturstækjunum sé stjórnað af þrautþjálfuðum og reyndum bílstjórum getur slíkur akstur alltaf skapað ákveðna hættu sem við viljum gjarnan forðast eins og hægt er.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×