Sport

Topp tíu listinn í kjöri Íþróttamanns ársins 2018: Guðjón Valur í tíunda skiptið og Sara setti met

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íþróttamennirnir tíu sem koma til greina sem Íþróttamaður ársins 2018.
Íþróttamennirnir tíu sem koma til greina sem Íþróttamaður ársins 2018.
Samtök íþróttafréttamanna kjósa nú Íþróttamann ársins í 63. sinn og það er komið á hreint hvaða íþróttamenn enduðu í tíu efstu sætunum í kjörinu í ár. Þrír nýliðar eru á topp tíu listanum í ár en fjórir íþróttamannanna tíu voru líka á topp tíu listanum fyrir ári síðan.

Íþróttamaður ársins verður útnefndur í Hörpu 29. desember næstkomandi en 31 félagi í samtökum íþróttafréttamanna kusu í ár og hafa aldrei fleiri kosið.

Að venju er topp tíu listinn gerður opinber rétt fyrir jól og svo er einnig nú. Í viðbót kom í ljós hvaða þrír fengu flest atkvæði fengu í kjöri á þjálfara ársins og hvaða þrjú lið fengu flest atkvæði í kjörinu frá liði ársins.

Sjö íþróttagreinar eiga fulltrúa á topp tíu listanum en fjórir af tíu á listanum eru knattspyrnumenn. Fimleikar, handbolti, körfubolta, kraftlyftingar, frjálsar íþróttir og golf eiga síðan einn fulltrúa hvert.

Bara tvær konur komast inn á topp tíu listann að þessu sinni og hafa ekki verið færri í fimm ár. Fimm konur höfðu komist í hóp þeirra tíu efstu undanfarin fjögur ár. Ein kona heldur þó áfram að bæta við met sitt.

Sara Björk Gunnarsdóttir bætti við met sitt yfir flest skipti inn á topp tíu. Engin önnur kona hefur verið oftar en fimm sinnum meðal tíu efstu en Sara Björk er þar í sjöunda skiptið. Sara Björk er líka sjötta árið í röð meðal þeirra tíu efstu í kjörinu á íþróttamanni ársins. Alls eru fjögur á listanum í ár sem voru þar líka í fyrra. Hinir þrír eru knattspyrnumennirnir Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson og svo handboltamaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson.

Gylfi er meðal tíu efstu sjöunda árið í röð en hann hefur verið á topp tíu á öllum listum frá og með áreinu 2012. Gylfi var kosinn Íþróttamaður ársins 2013 og 2016. Hann ásamt Guðjóni Val Sigurðssyni eru þeir einu á topp tíu listanum í ár sem hefur áður fengið útnefninguna Íþróttamaður ársins.

Guðjón Valur Sigurðsson komst líka í góðan hóp með því að vera í tíunda skipti meðal þeirra tíu efstu í kjörinu. Þetta er líka í sjötta sinn sem Guðjón er meðal þeirra tíu efstu eftir að hann varð þrítugur og því hafa aðeins tveir náð í sögunni eða þeir Bjarni Friðriksson og Ólafur Stefánsson, báðir sjö sinnum.

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir heldur áfram þeirri hefð frjálsíþróttakvenna að komast inn á topp tíu en þetta er tíunda árið í röð sem frjálsíþróttakona er meðal tíu efstu í kjörinu.

Guðbjörg Jóna er einn af þremur nýliðunum inn á topp tíu í ár en hinir eru fimleikmaðurinn Valgarð Reinhardsson og kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús. Guðbjörg Jóna er bara sautján ára og langyngst á topp tíu listanum enda sú eina sem er ekki orðin 22 ára.

Valgarð Reinhardsson er næstyngstur (22 ára) og  aðeins annar fimleikamaðurinn í sögu kjörsins sem kemst inn á topp tíu en sá síðasti var Rúnar Alexandersson fyrir fjórtán árum. Rúnar var fimm sinnum inn á topp tíu á árunum 1998 til 2004.

Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson og kraftlyftingamaðurinn Júlían J. K. Jóhannsson koma báðir aftur inn á listann eftir eins árs fjarveru en þeir voru meðal tíu efstu í fyrsta sinn fyrir tveimur árum.

Það er lengra síðan að Alfreð Finnbogason var á topp tíu en hann var síðast meðal tíu efstu árið 2013.

Hér fyrir neðan má sjá hvaða tíu íþróttamenn, þrjú lið og þrír þjálfarar eru tilnefnd í ár.



Tíu efstu í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2018:

Alfreð Finnbogason

29 ára knattspyrnumaður

Spilar með Augsburg í Þýskalandi

Í þriðja skiptið meðal tíu efstu

Fyrst á topp tíu 23 ára gamall árið 2012

Alfreð skoraði á árinu bæði fyrsta mark Íslands í úrslitakeppni HM (á móti Argentínu) og fyrsta mark Íslands í Þjóðadeildinni. Hann var einnig markahæsti landsliðsmaður ársins með fjögur mörk. Alfreð hefur þegar skorað sjö mörk í þýsku deildinni á þessu tímabili þrátt fyrir að hafa spilað aðeins níu leiki. Hann varð auk þess tíundi markahæsti maður þýsku deildarinnar sem lauk síðasta vor.

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir

17 ára frjálsíþróttakona

Æfir hjá ÍR í Reykjavík

Í fyrsta skiptið meðal tíu efstu

Guðbjörg Jóna varð bæði Evrópumeistari unglinga og Ólympíumeistari ungmenna á árinu. Hún vann gull í 100 metra hlaupi og brons í 200 metra hlaupi á EM undir 18 ára og varð svo Ólympíumeistari ungmenna í 200 metra hlaupi kvenna, þar sem hún bætti Íslandsmetið í greininni (23,47 sek) en sá tími er í 279. sæti heimslista IAAF. Hún bætti Íslandsmetið í 200 metra hlaupi þrisvar sinnum á árinu en það hafði staðið í 21 ár þegar Guðbjörg bætti það fyrst í júní.

Guðjón Valur Sigurðsson

39 ára handknattleiksmaður

Spilar með Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi

Í tíunda skiptið meðal tíu efstu

Fyrst á topp tíu 26 ára gamall árið 2005

Guðjón Valur varð bikarmeistari með Rhein Neckar Löwen í Þýskalandi en liðið endaði í öðru sæti í Bundesligunni og vann Super Cup í Þýskalandi. Guðjón varð markahæsti landsliðsmaður heims frá upphafi á árinu þegar hann bætti met Ungverjans Peter Kovacs. Guðjón er líka komin í hóp markahæstu leikmanna Bundesligunnar frá upphafi en hann þriðji markahæsti erlendi leikmaður sögunnar. Guðjón átti líka frábæra leiki í Meistaradeildinni og í þýsku deildinni í haust.



Gylfi Þór Sigurðsson

29 ára knattspyrnumaður

Spilar með Everton í Englandi

Í áttunda skiptið meðal tíu efstu

Fyrst á topp tíu 21 árs gamall árið 2010

Gylfi hefur verið í aðalhlutverki með Everton í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili þar sem hann hefur skorað 6 mörk og gefið 2 stoðsendingar í 17 leikjum. Gylfi er lykilmaður í liði sem er eins og er í áttunda sæti deildarinnar og hefur staðist þær miklu væntingar sem gerðar voru til hans eftir félagaskiptin til Everton á síðasta ári. Hann skoraði annað marka íslenska landsliðsins á HM í Rússlandi þar sem hann var í risastóru hlutverki.

Haraldur Franklín Magnús

27 ára kylfingur

Spilar fyrir Golfklúbb Reykjavíkur

Í fyrsta skiptið meðal tíu efstu

Haraldur komst inn á Opna breska meistaramótið eftir að hafa endað í öðru sæti á úrtökumóti fyrir risamótið. Hann tók því fyrstur allra íslenskra karlkylfinga þátt á risamóti á atvinnumótaröð. Hann  lék á 17 mótum á Nordic atvinnumótaröðinni og endaði í 55. sæti á stigalistanum. Hann komst í gegnum niðurskurðinn á tíu mótum og besti árangur hans var 7. sætið. 

Jóhann Berg Guðmundsson

28 ára knattspyrnumaður

Spilar með Burnley í Englandi

Í annað skiptið meðal tíu efstu

Fyrst á topp tíu 27 ára gamall árið 2017

Jóhann Berg var lykilmaður hjá enska úrvalsdeildarliðinu Burnley sem náði óvænt sjöunda sætinu í deildinni og tryggði sér sæti í Evrópudeildinni. Jóhann Berg skoraði 2 mörk og gaf átta stoðsendingar í ensku deildinni tímabilið 2017-18. Jóhann er með 2 mörk og 4 stoðsendingar á þessu tímabili. Hann er í lykilhlutverki í íslenska landsliðinu og var sárt saknað í tapleiknum á móti Nígeríu á HM í Rússlandi sem var langslakasti leikur liðsins á mótinu.

Júlían J. K. Jóhannsson

25 ára kraftlyftingamaður

Keppir fyrir Ármann í Reykjavík

Í annað skiptið meðal tíu efstu

Fyrst á topp tíu 23 ára gamall árið 2016

Júlían átti setti heimsmet á árinu í réttstöðulyftu, hann setti Evrópumet í klassískri réttstöðulyftu og náði bestum árangri allra í réttstöðulyftu í +120 kg flokki á HM í kraftlyftingum. Hann vann einnig gull á EM í kraftlyftingum og silfur á HM í klassískum kraftlyftingum. Júlían varð Íslandsmeistari í klassískum kraftlyftingum og stigahæstur í karlaflokki á Reykjavíkurleikjunum. Hann er í fjórða sæti á heimslista í sínum flokki. 

Martin Hermannsson

24 ára körfuknattleiksmaður

Spilar með Alba Berlin í Þýskalandi

Í annað skiptið meðal tíu efstu

Fyrst á topp tíu 22 ára gamall árið 2016

Martin er í lykilhlutverki hjá íslenska landsliðinu og steig enn eitt skrefið upp á við á sínum ferli þegar hann samdi við þýska stórliðið Alba Berlin. Martin léks með Châlons-Reims í efstu deild í Frakklandi í fyrra þar sem hann stóð sig frábærlega og svo vel að hann fékk samning hjá stórliði í Þýskalandi. Í undankeppni HM var Martin stigahæstur í íslenska landslliðinu með 21,5 stig að meðaltali,  stoðsendingahæstur með 3,7 stoðsendingar í leik og einnig framlagshæstur með 20,0 stig í leik.

Sara Björk Gunnarsdóttir

28 ára knattspyrnukona

Spilar með Wolfsburg í Þýskalandi

Í sjöunda skiptið meðal tíu efstu

Fyrst á topp tíu 21 árs gömul árið 2011

Sara Björk Gunnarsdóttir varð tvöfaldur meistari með Wolfsburg í Þýskalandi auk þess að komast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með þýska liðinu. Sara Björk meiddist í úrslitaleiknum og Wolfsburg liðið tapaði í framlengingu. Sara Björk er algjör lykilmaður í félagsliði og landsliði en Wolfsburg er eitt besta félagslið Evrópu. Hún skoraði ellefu mörk í öllum keppnum með Wolfsburg á síðustu leiktíð þar af 6 mörk í 9 leikjum í Meistaradeildinni. Hún var einnig ofarlega á lista Guardian yfir bestu knattspyrnukonur Evrópu.

Valgarð Reinhardsson

22 ára fimleikamaður

Keppir fyrir Gerplu í Kópavogi

Í fyrsta skiptið meðal tíu efstu

Valgarð náði þeim sögulega árangri að vera fyrsti íslenski fimleikamaðurinn til að komst í úrslit á stökki þegar hann var fimmti í undanúrslitunum á Evrópumótinu í Glasgow í ágúst en alls kepptu 151 keppandi á mótinu. Hann er ríkjandi Íslandsmeistari í fjölþraut, bikarmeistari með félagsliðinu sínu, Gerplu og vann til silfurverðlauna á tvíslá á Norðurlandamótinu í sumar. 

Lið ársins - tilnefningar



Karlalið ÍBV, handbolti

Karlalið ÍBV í handbolta varð þrefaldur meistari á síðasta tímabili og komst að auki í undanúrslit Áskorendakeppni Evrópu þar sem liðið féll út á móti Turda frá Rúmeníu sem vann svo titilinn. ÍBV vann Íslandsmeistaratitilinn eftir 3-1 sigur á FH í lokaúrslitaeinvíginu, bikarmeistaratitilinn eftir sigur á Fram í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll og deildarmeistaratitilinn eftir mikla dramatík í lokaumferðinni í Safamýrinni.



Kvennalandslið Íslands, hópfimleikar

Kvennalandsliðið í hópfimleikum vann til silfurverðlauna á Evrópumóti í hópfimleikum í október. Liðið vann tvö áhöld af þremur og var hársbreidd frá því að landa Evrópumeistaratitlinum í ár en grátlega litlu munaði á fyrsta og öðru sætinu. Styrk íslensku kvennanna má einna helst sjá í Stjörnuliði mótsins en Ísland átti þrjár af sex konum í því liði en ekkert land náði þeim árangri.



Landslið Íslands, golf

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Axel Bóasson, Valdís Þóra Jónsdóttir og Birgir Leifur Hafþórsson fögnuðu saman sigri á meistaramóti Evrópu í blandaðri liðakeppni. Mótið fór fram á Gleneagles í Skotlandi en þetta er í fyrsta sinn sem þessi keppni fór fram og í fyrsta sinn sem íslenskir kylfingar standa uppi sem sigurvegarar á Evrópumóti.

Þjálfari ársins - tilnefningar

Arnar Pétursson, ÍBV



Arnar þjálfaði karlalið ÍBV í handbolta sem varð þrefaldur meistari á síðasta tímabili og komst að auki í undanúrslit Áskorendakeppni Evrópu þar sem liðið féll út á móti Turda frá Rúmeníu sem vann svo titilinn.



Kristján Andrésson, Svíþjóð



Kristján þjálfaði karlalandslið Svía sem varð í öðru sæti á Evrópumótinu í Króatíu eftir tap á móti Spáni í úrslitaleik. Kristjáni tókst að fara svona langt með liðið þrátt fyrir að tapa á móti Íslandi í fyrsta leik mótsins en sænska liðið sló Ólympíumeistara Dana út í undanúrslitaleiknum.



Þorsteinn Halldórsson, Breiðablik



Þorsteinn gerði kornungt kvennalið Breiðabliks óvænt að tvöföldum meisturum sumarið 2018 þrátt fyrir að hafa misst þrjá lykilleikmenn í atvinnumennsku. Blikaliðið vann deildina með fimm stigum og svo 2-1 sigur á Stjörnunni í bikarúrslitaleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×