Körfubolti

Fannar skammar: „Ég ætla að þvo hjá þér rúðuna en ekki nota sápu“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Elvar Friðriksson var meðal þeirra sem fékk hárblásarann frá Fannari.
Elvar Friðriksson var meðal þeirra sem fékk hárblásarann frá Fannari. vísri/skjáskot/s2s
Fannar skammar var að sjálfsögðu í Domino's Körfuboltakvöldi á föstudagskvöldið er strákarnir gerðu upp nýliðnar umferðir í Dominos-deild karla og kvenna.

Þeir gerðu ekki bara upp elleftu umferðina í Dominos-deild karla og fjórtándu umferðina í Dominos-deild kvenna heldur gerðu strákarnir einnig upp fyrri hlutann í bæði karla- og kvennaflokki.

Veitt voru ýmis verðlaun en það var eitt sem klikkaði ekki. Fannar Ólafsson, einn spekingur þáttarins, fékk að sjálfsögðu aðeins að skamma menn og hann lét meðal annars fyrrum samherja sinn heyra það.

Innslagið stórskemmtilega má sjá hér að neðan.

Klippa: Körfuboltakvöld: Fannar skammar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×