Innlent

Dæmi um að hundar hlaupi fyrir bíla vegna flugelda

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Algengt er að flugeldar skjóti hundum skelk í bringu á áramótunum.
Algengt er að flugeldar skjóti hundum skelk í bringu á áramótunum. Vísir/Andri Marinó
Matvælastofnun gaf í dag út tilkynningu þar sem dýraeigendur eru minntir á að huga vel að dýrum sínum í aðdraganda áramótanna sökum flugeldaskota sem fylgja því þegar nýtt ár gengur í garð. Gæludýra- og hesteigendur eru sérstaklega hvattir til þess að gera ráðstafanir til þess að gera dýrum sínum lífið sem bærilegast meðan flugeldahríðin stendur yfir.

Í tilkynningu MAST segir að alþekkt sé að dýr bregðist afar illa við hávaða frá flugeldaskotum og geti það valdið slysum, bæði á dýrunum sjálfum og umhverfi þeirra, öðrum dýrum og fólki. Dæmi séu um að hundar hafi hlaupið fyrir bíla eða á fjöll. Hestar í haga séu í sérstakri hættu, þar sem dæmi séum um að þeir hafi fælst við flugelda, brotist út úr girðingum og hlaupið fyrir bílaumferð og valdið slysum. Þá segir MAST að óþarfi sé að lýsa því sem geti gerst ef flugeldum er skotið upp rétt hjá eða yfir fólki við útreiðar.

Þá vekur MAST sérstaka athygli á breytingum á leyfilegum skottíma flugelda sem nú er skemmri en undanfarin ár. Almenn notkun flugelda er leyfð frá 28. desember til 6. janúar frá kl. 10:00 til 22:00 og alla nýársnótt. Segir stofnunin afar mikilvægt að þessi tímatakmörk séu virt svo dýraeigendur geti viðrað dýr sín án þess að eiga á hættu að ofsahræðsla vegna flugelda grípi um sig hjá dýrunum.

Matvælastofnun vill einnig beina til almennings, sérstaklega foreldra og forráðamanna unglinga og barna, að sýna þá tillitsemi við dýr og eigendur þeirra að skjóta einungis upp flugeldum og sprengja ýlur og hvellhettur á gamlárskvöld og þrettándanum. Það hjálpi eigendum dýranna að grípa til viðeigandi ráðstafana.

Að lokum birti MAST lista yfir möguleg fyrirbyggjandi úrræði sem dýraeigendur geta nýtt sér. Listann og tilkynningu MAST í heild sinni má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×