Klopp er aldrei langt frá þegar Mourinho er rekinn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 18. desember 2018 17:30 „Ég ræð þessu ekkert“ vísir/getty
Jose Mourinho var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Manchester United í dag. Þetta er ekki í fyrsta og ekki í annað skiptið sem Mourinho er rekinn og er það nokkuð daglegt brauð að knattspyrnustjórar missi starfið sitt. Jurgen Klopp virðist hins vegar allt af vera nálægt þegar Mourinho er látinn fjúka. Þjóðverjinn hafði betur gegn Portúgalanum á sunnudaginn þegar stjórarnir mættust með lið sín Manchester United og Liverpool. United hefur sjaldan þótt spila eins illa í leik við erkifjendur sína og á sunnudag og um leið og lokaflautið gall fór umræðan um að þetta hefði verið síðasti naglinn í kistu Mourinho á flug. Tveimur dögum síðar er ljóst að það var rétt, Mourinho er floginn á burt. Síðast þegar Mourinho var rekinn var fyrir þremur árum nærri upp á dag. 17. desember 2015 fékk hann að taka pokann sinn frá Chelsea. Þriðji síðasti leikur hans með Chelsea var gegn Liverpool. Þá hafði ákveðinn Þjóðverji nýverið tekið við Liverpool og náði í sinn fyrsta sigur gegn bláklæddum lærisveinum Mourinho. Árið 2013 var Mourinho stjóri Real Madrid. Hann kom liðinu í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu en þar mætti liðið Borussia Dortmund undir stjórn Jurgen Klopp. Dortmund niðurlægði Madrid og vann 4-1 sigur í fyrri leiknum. Á blaðamannafundi eftir leikinn gaf Mourinho það sterlega til kynna að hann væri á förum. „Ég er elskaður af sumum félögum, sérstaklega einu. Á Spáni er það öðruvísi og margir hata mig, margir af ykkur hér í þessu herbergi.“ Mourinho hætti eftir tímabilið.
Enski boltinn Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Handbolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Fótbolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Fótbolti Fleiri fréttir Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Sjá meira