Einföld ráð fyrir karlmenn til að minnka ágreining og auka nánd í samböndum Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi kynnir 8. desember 2018 13:00 John Gottman og Julie Schwartz Gottman eru höfundar bókarinnar, Það sem karlar vilja vita. „
Veistu hvað konan í þínu lífi er að hugsa? Gleymdirðu kannski að hugsa út í það? Það sem þú heldur er líklega ekki það sem er að gerast í raun og veru. „Það sem karlar vilja vita" eru vísindalega sannaðar staðreyndir um mun kynjanna, sérstaklega settar fram fyrir karlmenn sem vilja ná meiri árangri í samböndum, minnka ágreining og auka nánd,“ segir Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi og útgefandi bókarinnar, Það sem karlar vilja vita, eftir John Gottman og Julie Schwartz Gottman. „Þetta er eins og að fá leiðbeiningabækling. Nú skil ég loksins hvað ég var að gera rangt í mínum samböndum.“ Þetta sagði einn lesandi um bókina við mig eftir lesturinn,“ útskýrir Ólafur Grétar.„Það er til að mynda mikill misskilningur okkar karlmanna að þegar kona segir okkur frá vanlíðan eða vandamáli, þá byrjum við að koma með lausnir. Það er okkar eðli. Við strákarnir komum með vandamál hvor til annars til að fá lausnir. Konur eru ekkert að biðja um lausnir. Þær þurfa bara að segja frá því hvernig þeim líður og að láta hlusta á sig. Ef þær vilja lausnir, þá biðja þær um þær. Að koma alltaf með lausnir er merki um að þú álítir þig vita meira en þær. Þær vita oftast lausnina en eru meira að hugsa upphátt um vandamálið með að segja frá því, eitthvað sem karlmenn gera sjaldan. Bara með þá vitneskju í farteskinu, breytast samskipti karlmanns við konu jafnvel um leið. Bókin er uppfull af svona einföldum hlutum sem við strákarnir getum tileinkað okkur en samkvæmt rannsóknum höfunda eru það karlmenn sem hafa upphaf af samböndum en eru einnig valdar að sambandsslitunum. Það eru aftur á móti konur sem enda sambönd í meirihluta tilfella. Karlar sem vilja löng og góð sambönd þurfa að vinna vinnuna, lesa sér til og gefa réttu merkin. Þeir þurfa að skilja og þeir þurfa að skiljast. Það er því í valdi karlmanna að halda sambandi lifandi og þar með fjölskyldum saman,“ segir Ólafur. „Þau John Gottman og Julie Schwartz Gottman hafa rekið ástarrannsóknarstofu í áraraðir og eru helstu sérfræðingar heims á sínu sviði. John hefur m.a. fengið viðurnefnið Einstein ástarinnar hjá New York Times. John hefur birt 200 vísindagreinar og eru hjónin höfundar 44 bóka um ástarmál og samskipti kynjanna og fjölskylduna. Með þeim skrifa bókina Douglas Abrams og læknirinn Rachel Carlton Abrams, sem einnig hafa getið sér gott orð vegna skrifa um sama mál og heilsu. Þýðandi er María Vigdís Kristjánsdóttir, M.A. í mannfélagsfræði, sérkennari cand. spes. ped. og þýðandi cand. mag." ,,Þau tóku allt sem þau höfðu skrifað og suðu niður í eina auðlesna og einfalda bók, sérstaka ætlaða karlmönnum. Þau höfðu öll tekið eftir því að það voru nánast bara konur sem lásu bækurnar þeirra en samkvæmt rannsóknum eru það karlmenn sem hafa meiri þörf fyrir lesturinn. Bókin, Það sem karlar vilja vita, er því þeirra framlag til að við strákarnir náum betri árangri í samböndum og nánd. Við getum oft verið klaufar í þessum samskiptum og skiljum ekkert í því af hverju þau ganga ekki eins og þau eiga að ganga. Með lestri bókarinnar er nær öruggt að samskipti í samböndum batni, líkur aukist á að samband endist, árekstrum fækki og nánd vaxi. Það sem ég hef aftur á móti líka tekið eftir er að konur eru mjög forvitnar um bókina. Bæði til að læra um hugsunarhátt karlmanna og læra um sig sjálfar. Bókin er líka fullkomin og hugulsöm gjöf til karlmanna. Líklega besta gjöfin til lengri og skemmri tíma.“ Bókin kom út í síðastliðinni viku er komin í allar helstu verslanir.Þessi kynning er unnin í samstarfi við útgefanda bókarinnar
Mest lesið Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Fleiri fréttir X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sjá meira