Öruggur sigur Juventus

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Cristiano Ronaldo, skoraði úr vítaspyrnu
Cristiano Ronaldo, skoraði úr vítaspyrnu vísir/getty
Juventus styrkti stöðu sína á toppi ítölsku Seria A deildarinnar með öruggum 3-0 sigri á Fiorentina á útivelli í kvöld.

Ítalíumeistararnir eru eina ósigraða liðið í deildinni til þessa og þeir heimsóttu Fiorentina sem berst um miðbik deildarinnar. Síðustu fimm leikir Fiorentina fyrir leik kvöldsins höfðu endað með jafntefli.

Rodrigo Bentancur kom gestunum yfir eftir hálftíma leik eftir undirbúning Paulo Dybala og var það eina markið sem skorað var í fyrri hálfleiknum.

Í seinni hálfleik kláruðu meistararnir svo leikinn, Giorgio Chiellini skoraði á 69. mínútu og Cristiano Ronaldo tryggði sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 79. mínútu.

Juventus er nú með 11 stiga forystu á Napólí á toppnum en Napólí á leik til góða á gömlu konuna.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira