Erlent

Báðust afsökunar eftir að starfsmaður hæddist að nafni barns

Sylvía Hall skrifar
Stúlkan var á leið í flug ásamt móður sinni þegar atvikið átti sér stað.
Stúlkan var á leið í flug ásamt móður sinni þegar atvikið átti sér stað. Getty/Rick Gershon
Flugfélagið Southwest hefur beðist afsökunar eftir að starfsmaður flugfélagsins gerði grín að nafni fimm ára stúlku. Stúlkan heitir Abcde sem eru einnig fyrstu fimm stafir stafrófsins.

Abcde, sem er borið fram Ab-city, var að ferðast með móður sinni frá Santa Ana í Kaliforníu til El Paso í Texas þegar starfsmaður við hliðið gerði grín að nafni stúlkunnar. Móðir stúlkunnar segir starfsmanninn ekki hafa farið leynt með grínið og tók meðal annars mynd af brottfararspjaldi Abcde.

„Starfsmaðurinn fór að hlæja, benti á mig og dóttur mína og grínaðist við aðra starfsmenn. Ég sagði henni að ég gæti heyrt í honum og dóttir mín líka,“ sagði móðirin.

Hún segir dóttur sína hafa spurt hvers vegna starfsmaðurinn væri að gera grín að nafni hennar og þurfti móðirin að útskýra fyrir dóttur sinni að „sumt fólk væri ekki gott fólk“.





Flugfélagið segist ekki geta tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna en að málið hafi verið tekið fyrir og notað sem tækifæri fyrir starfsfólk að endurskoða framkomu sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×