Formúla 1

Upphitun: Partý í Abu Dhabi

Bragi Þórðarson skrifar
Þessir þrír eru væntanlega klárir í slaginn um helgina.
Þessir þrír eru væntanlega klárir í slaginn um helgina. vísir/getty
Lokaumferðin í Formúlu 1 fer fram á Jas Marina brautinni í Abu Dhabi um helgina. Lewis Hamilton og Mercedes hafa nú þegar tryggt sér titlana eftirsóttu en þrátt fyrir það hefur tímabilið verið ótrúlega spennandi.

Sebastian Vettel vann fyrsta kappaksturinn á sínum Ferrari í Ástralíu í Mars. Vettel og Hamilton skiptust á fyrsta sætinu í mótinu margoft í sumar. Það voru þó Ferrari og Vettel sem glopruðu sínum möguleikum niður þegar líða tók á haustið.

Í síðustu tveimur keppnum hefur það hins vegar verið Max Verstappen á Red Bull sem hefur verið hraðastur. Hollendingurinn vann í Mexíkó en sigrinum var stolið af honum í Brasilíu.

Valtteri Bottas kom fyrstur í mark í Abu Dhabi í fyrra á undan liðsfélaga sínum, Lewis Hamilton. Finninn freistir þess að sama verði uppi á teningnum um helgina en þetta er síðasta séns Bottas að vinna keppni árið 2018.

Jas Marina brautin er talsvert hröð og skiptir aflið því aðal máli í eyðimörkinni. Nú þegar að báðir titlarnir eru komnir í hús verður aðal áherslan sennilega á þeim skemmtiatriðum sem Abu Dhabi hefur alltaf uppi að bjóða.

Við brautina er heill skemmtigarður sérstaklega tileinkaður Formúlu 1. Fimm stjörnu hótel er við brautina og ekki skemmir fyrir að Íslandsvinirnir í Guns and Roses munu loka tímabilinu með stæl á sunnudagskvöldið.

Æfingar, tímatökur og kappaksturinn sjálfur verða allt í þráðbeinni á Stöð 2 Sport um helgina. Ræst verður af stað í kappaksturinn klukkan eitt á íslenskum tíma á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×