Partí í Dúfnahólum 10 Þórlindur Kjartansson skrifar 23. nóvember 2018 07:00 Frægasta eftirpartí Íslandssögunnar var haldið í Breiðholtinu. Nánar tiltekið á efstu hæð í fjölbýlishúsinu við Dúfnahóla 10. Þangað hópuðust tugir gesta í mjög einsleitu en þó misjöfnu ástandi eftir tónleika hljómsveitarinnar HAM í miðborg Reykjavíkur. Það fyrsta sem gestirnir gerðu þegar þeir höfðu ruðst inn í íbúðina var að sparka skrautmunum ofan af stássborðum og leggjast svo í símann til þess að redda áfengi. Íbúðin var nefnilega ekki beinlínis búin undir að taka á móti stórum hópi djammþyrstra ungmenna, enda var hún innréttuð eftir smag og behag roskinnar móður söguhetjunnar í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík, og yrði seint lýst sem sérlega partívænu húsnæði—jafnvel eftir að gestirnir voru búnir að kveikja á blysum inni í stofunni og byrjaðir að skjóta flugeldum ofan af svölunum. Hin roskna húsfrú svaf svo fast að hún rankaði ekki við sér í gauraganginum og svaf það meira að segja af sér þegar hún var borin út á dýnunni, pakkað saman inn í lyftuna og hlaðið ofan í lítinn bát á bílastæðinu. Það var ekki fyrr en hún var komin á flot niður Elliðaárnar—og eftir að vatni hafði verið hleypt í gegnum stífluna—að hún loksins vaknaði; og þá reyndar með verulegum andfælum.Tilefnislaust partí Flestir muna eflaust tilefni partísins. Það var byggt á algjörum misskilningi. Söguhetjan Alex var í sakleysi sínu að hrópa heimilisfang sitt til hins harðsvíraða glæpamanns Mola í síbyljandi hávaða þungarokkstónleika þegar tónlistarmennirnir gerðu skyndilega og fullkomlega ófyrirsjáanlega kúnstpásu. Hrópið hljómaði því ómengað yfir allan skarann. „Dúfnahólar 10,“ hrópaði hann og orðrómurinn barst á augabragði frá manni til manns. Kvöldinu var bjargað. Enginn þurfti að óttast um afdrif sín eftir að klukkan sló þrjú. Það var partí í Dúfnahólum 10. Allt var þetta byggt á misskilningi. Það stóð auðvitað aldrei til að halda neitt partí í Dúfnahólum 10. Það hefði reyndar hverjum manni mátt vera ljóst um leið og komið var þangað inn og veislugestir höfðu tækifæri til þess að kynna sér aðbúnaðinn örlítið nánar. En þá var vitaskuld orðið alltof seint að fara að gera eitthvað í þessu og allsendis óvíst að hægt væri að komast í partí einhvers staðar annars staðar svona seint um kvöldið. Úr því sem komið var gat atburðarásin ekki orðið önnur heldur en sú sem varð, að íbúðinni var rústað í gleðskapnum. Ekkert við því að gera. Partíþyrstir tónleikagestir hefðu aldrei látið bjóða sér annað en að halda þetta blessaða partí. Og því fór sem fór. Eins og gjarnan er með eftirpartí þá féll það í hlut einhverra allt annarra að mæta afleiðingunum daginn eftir, laga til í íbúðinni og borga fyrir skemmdirnar. Þeir brenna sig sjaldnast á eldunum sem fyrstir kveikja þá.Misskilningur Nú hefur þess orðið mjög vart á síðustu vikum að alls konar misskilningur hefur grafið um sig um innleiðingu á svokölluðum þriðja orkupakka sem Íslandi ber að innleiða vegna þess að við erum meðlimir í fríverslunarbandalagi Evrópuþjóða—Evrópska efnahagssvæðinu. Eins og mjög mörg önnur löggjöf sem íslenskir stjórnmálamenn hafa neyðst til að setja í lög á grundvelli þessa samstarfs þá er tilgangur hennar að stuðla að heilbrigðari og betri markaði með afurð sem er mikilvæg fyrir bæði neytendur og framleiðendur—sem sagt raforku. Löggjöfin er vitaskuld sniðin að hinum sameiginlega markaði í Evrópu og mun ekki hafa teljandi áhrif á Íslandi nema hingað verði lagður sæstrengur. Og jafnvel þá er ekki verið að leggja til að einhverjar ömurlega ósanngjarnar sérreglur gildi um Ísland, heldur bara þær nákvæmlega sömu og um hina 500 milljón íbúa þeirra landa sem við eigum í svo nánu og verðmætu sambandi við.Rangur misskilningur Til eru þeir sem hafa mikinn áhuga á því að gera mikla grýlu úr þessari löggjöf. Og einhvern veginn hefur það gerst að búið er að hvísla ýmsum misskilningi og rangtúlkunum í eyru þeirra sem langar ákafast í einhvers konar pólitískt upplausnarpartí. Stjórnvöld eiga vitaskuld í verulegum vandræðum með að leiðrétta spunann því það getur nefnilega verið mjög erfitt að afboða í eftirpartí þegar leigubílarnir eru lagðir af stað. Alveg eins og partígestirnir í Dúfnahólum 10 þurftu ekki að taka minnstu ábyrgð á afleiðingum veisluhaldsins—þá munu þeir ekki þurfa að þrífa upp eftir sig sem harðast reka áróður gegn frjálsri verslun og evrópskri samvinnu um þessar mundir. Það mun falla í hlut ábyrgara stjórnmálafólks að greiða úr þeim flækjum sem fyrirsjáanlegar eru ef upplausnaröfl fá vilja sínum framgengt.Stolt eða hrædd? Þeir sem segjast hafa mestar áhyggjur af árásum á fullveldi Íslands eru einmitt þeir hinir sömu sem þykjast ná ekki upp í nef sér af reiði út í orkulöggjöfina evrópsku. En er það ekki eitthvað öfugsnúið? Lýsir það sérstöku stolti yfir fullveldi Íslands og getu þjóðarinnar til að standa á eigin fótum, að telja að Ísland þurfi sérstakar undanþágur frá því að hlíta sömu reglum og aðrir á sama markaði? Lýsir það kannski frekar hræðslu? Það má nefnilega teljast frekar ótrúleg vantrú á getu og hæfileika íslensku þjóðarinnar að hamast gegn því að okkar fólk hafi tækifæri til þess að starfa frjálst og opið á risastórum opnum markaði—með þeim kostum og göllum sem því fylgir. En það er ekkert að óttast. Íslendingar geta nefnilega verið mjög stoltir yfir því hvernig okkur hefur tekist að bæta lífskjör okkar á grundvelli frjálsrar verslunar við Evrópu. Áður en við leyfum okkur að fara á taugum yfir illa ígrunduðum samsæriskenningum ættum við að líta vandlega í kringum okkur og sjá hversu verðmætt það er að heimamarkaður Íslands telur ekki aðeins 350 þúsund sálir, heldur hálfan milljarð. Og þeir sem vilja standa vörð um alla þessa miklu kosti þurfa líka að vera fljótari á fætur heldur en húsfreyjan í Dúfnahólum 10; svo við vöknum ekki ein á báti á náttfötunum einhvers staðar úti á hafi. Þá er lítil huggun í því að vitleysan hafi byggst á eintómum misskilningi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Þórlindur Kjartansson Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson Skoðun Um læknisvottorð til vinnuveitenda Gunnar Ármannsson Skoðun Nokkrar góðar ástæður til að svindla á örorkukerfinu Eiður Welding Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson Skoðun Tvö hundruð milljarða afsláttur VG Inga Lind Karlsdóttir Skoðun Fjórar brýnar ástæður til að hætta viðskiptum við Rapyd Björn B. Björnsson Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Brosum breitt Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um læknisvottorð til vinnuveitenda Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ert þú í tengslum? Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Hin hljóða millistétt Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Af hverju er verðlag hér tvöfalt hærra en í Evrópu? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Þegar hríðinni slotar Ásta F. Flosadóttir skrifar Skoðun Nemendalýðræði á brauðfótum Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Mikilvægi kínverskra ferðamanna fyrir Ísland og áhrif beins flugs frá Kína Guðmundur Franklín Jónsson skrifar Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson skrifar Skoðun Þannig gæti Alþingi sameinast um orkumál Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Samfylkingin – Með og á móti Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stuðlar ekki að sérstöðu eins fyrirtækis á BSÍ Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Sex liða áætlun til að koma á jafnvægi í húsnæðismálunum. Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson skrifar Skoðun Hættur kynhlutleysisins Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Ólögleg áfengissala Ari Jónsson skrifar Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Gerræði ráðherranna Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Með lygina að vopni Páll Hermannsson skrifar Skoðun Leyfið til að drepa langreyði - óforsvaranleg ákvörðun Micah Garen skrifar Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun UNICEF skóli Laugardals við Kirkjuteig Tryggvi Scehving Thorsteinsson skrifar Skoðun Leggðu rafskútunni vel í Kópavogi Bergur Þorri Benjamínsson skrifar Skoðun Fjórar brýnar ástæður til að hætta viðskiptum við Rapyd Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Ekkert bús í búðir! Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Fiskeldi og Vestfirðir Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tvö hundruð milljarða afsláttur VG Inga Lind Karlsdóttir skrifar Skoðun Bætt þjónusta og minni kostnaður, er hægt að biðja um það betra? Hrefna Eyþórsdóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Mikilvægi kínverskra ferðamanna fyrir Ísland og áhrif beins flugs frá Kína Guðmundur Franklín Jónsson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun