Fótbolti

Þetta þarf að gerast svo Ísland verði í efsta styrkleikaflokki

Tómas Þór Þórðarson í Brussel skrifar
Erik Hamrén þarf sigur í kvöld.
Erik Hamrén þarf sigur í kvöld. vísir/getty
Íslenska landsliðið í fótbolta er fallið úr A-deild Þjóðadeildarinnar sama hvernig fer á móti Belgíu í lokaleik liðsins í Brussel í kvöld. Okkar menn eru stigalausir eftir þrjá leiki og ljóst að þeir verða í B-deildinni þegar annað tímabil Þjóðadeildarinnar verður flautað af stað haustið 2020.

Nú snýst allt um undankeppni EM 2020 en dregið verður í riðla fyrir hana annan desember og ráðast styrkleikaflokkarnir fyrir dráttinn af endanlegri stöðu liðanna í Þjóðadeildinni.

Efstu tíu liðin í Þjóðadeildinni verða í fyrsta styrkleikaflokki þegar dregið verður til undankeppni EM 2020, næstu tíu lið verða í öðrum styrkleikaflokki og svo koll af kolli.

Ísland verður aldrei neðar en í öðrum styrkleikaflokki þar sem að þeir tóku þátt í A-deild Þjóðadeildarinnar og verða því aldrei neðar en í tólfta sæti. Strákarnir okkar geta enn náð topp tíu og verið í efsta flokki í drættinum en það er mjög ólíklegt.

Heildarstaðan í Þjóðadeildinni:

1. Frakkland 7 stig (3 leikir)

2. Spánn 6 stig (3 leikir)

3. Belgía 6 stig (2 leikir)

3. Portúgal 6 stig (2 leikir)

4. Sviss 6 stig (3 leikir)

5. Sviss 6 stig (3 leikir)

6. England 4 stig (2 leikir)

7. Ítalía 4 stig (3 leikir)

8. Holland 3 stig (2 leikir)

9. Pólland 1 stig (3 leikir)

10. Þýskaland 1 stig (2 leikir)

11. Króatía 1 stig (2 leikir)

12. Ísland 0 stig (3 leikir)

Ísland er án stiga og verður því að byrja á því að vinna Belgíu, besta landslið heims, á útivelli til þess að komast í þrjú stig en ekkert minna dugar til þess að enda á meðal tíu efstu þjóðanna.

Þetta var orðið ljóst eftir tapið gegn Sviss á Laugardalsvelli í síðasta mánuði en eftir hann þurftu fimm úrslit að falla með okkur og við fengum strax hjálp frá Frakklandi sem kom til baka eftir að lenda 1-0 undir á móti Þýskalandi og vann leikinn.

Pólland, Þýskaland og Króatía eru liðin sem Ísland er að reyna að skilja eftir fyrir aftan sig en með sigri Íslands í kvöld eru þau komin í vandræði. Króatar eiga leik gegn Spáni í kvöld og Englandi á sunnudaginn og mega ekki fá meira en eitt stig út úr þeim ef Ísland vinnur Belgíu.

Þýskaland á einn leik eftir á móti Hollandi og þar þurfum við hjálp frá Hollendingum sem mega gera jafntefli við þýska liðið ef Ísland vinnur Belgíu.

Svo eru það Pólverjarnir sem eiga mjög erfiðan leik eftir á móti Portúgal á útivelil en þar mega þeir bara ekki vinna ef Íslandi tekst að leggja Belgíu að velli í kvöld.

Leikirnir sem skipta Ísland máli:

15. nóv: Króatía - Spánn

18. nóv: England - Króatía

19. nóv: Þýskaland - Holland

20. nóv: Portúgal - Pólland

Ef Ísland vinnur Belgíu verða...

... Króatar fyrir aftan Ísland ef þeir fá bara eitt stig úr síðustu tveimur leikjum sínum.

... Þjóðverjar fyrir aftan Ísland ef þeir vinna ekki Holland.

... Pólland fyrir aftan Ísland ef það vinnur ekki Portúgal.


Tengdar fréttir

Landsliðsþjálfarar hjálparlausir gagnvart meiðslum

Erik Hamrén, þjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta, segir þjálfara félagsliða geta reynt að hafa áhrif á meiðslafjölda leikmanna sinna en landsliðsþjálfarar geti ekkert gert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×