Erlent

Rann­saka meinta haturs­glæpi flokks­manna breska Verka­manna­flokksins

Atli Ísleifsson skrifar
Cressida Dick er yfirmaður Lundúnalögreglunnar.
Cressida Dick er yfirmaður Lundúnalögreglunnar. Getty/Chris J Ratcliffe
Lögregla í Bretlandi hefur hafið rannsókn á meintum hatursglæpum, sem snúa að gyðingahatri, innan breska Verkamannaflokksins.

Cressida Dick, yfirmaður Lundúnalögreglunnar, lét hafa eftir sér í útvarpsviðtali á BBC að lögregla rannsaki nú ákveðin gögn á netinu, þar sem „hugsanlegt sé að glæpur hafi verið framinn“.

Trúnaðargögn frá flokknum höfðu áður komist í hendur LBC Radio þar sem finna mátti upplýsingar um 45 færslur flokksmanna á samfélagsmiðlum. Gögnunum var svo komið í hendur lögreglunnar í september síðastliðinn.

Snýr ekki að flokknum sjálfum

Dick sagði lögregluna hafa skyldu til að vega og meta gögnin. Hún lagði þó áherslu á að rannsóknin sneri ekki að Verkamannaflokknum sjálfum.

LBC hafði áður greint frá því að meðal færslna voru hótanir í garð þingmanna. Í einni þeirra var kvenkyns þingmaður Verkamannaflokksins sagður „öfgasíonisti […] sem hati siðað fólk“ og væri þann mund að verða fyrir barsmíðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×