Guðjón Valur með ellefu mörk í sigri og Teitur skoraði níu fyrir Kristianstad Anton Ingi Leifsson skrifar 7. nóvember 2018 19:31 Þessi maður er ótrúlegur. vísir/getty
Guðjón Valur Sigurðsson var stórkostlegur er Rhein-Neckar Löwen lenti í engum vandræðum með Montpellier í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Lokatölur tíu marka sigur Löwen, 37-27. Þjóðverjarnir voru 16-13 yfir í hálfleik en stigu á bensíngjöfina í síðari hálfleik og unnu að lokum öruggan sigur á franska liðinu. Vandræði hjá franska stórveldinu. Guðjón Valur var frábær í vinstra horninu hjá Löwen en hann skoraði ellefu mörk úr fjórtán skotum. Markahæsti maður vallarins en Alexander Ptersson bætti við tveimur mörkum úr fimm skotum. Ljónin eru á toppi A-riðilsins með tíu stig rétt eins og Vardar og Barcelona en tvö síðarnefndu liðin eiga leik til góða á Löwen. Montpellier er með eitt stig eftir sjö leiki. Barcelona lenti í engum vandræðum með Logrono í spænsku úrvalsdeildinni. Börsungar unnu tólf marka sigur, 41-19, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik 20-16. Aron skoraði fjögur mörk úr sex skotum en hann dældi einnig út stoðsendingum. Barcelona er með fullt hús stiga eftir níu leiki og er með sjö stiga forskot á næstu lið. Teitur Örn Einarsson var markahæstur í liði Kristianstad sem hafði betur gegn Ystads, 26-23, á heimavellli í sænsku úrvalsdeildinni. Staðan í hálfleik var 16-7 en meistararnir slökuðu á í síðari hálfleik. Selfyssingurinn gerði níu mörk og var markahæsti maður vallarins. Ólafur Guðmundsson bætti við einu marki fyrir Kristianstad en Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað fyrir Kristianstad sem er á toppnum með átján stig eftir tíu leiki.
Handbolti Mest lesið Bönnuðu henni að eiga kærasta Sport Tileinkar látnum vini sínum sögulegan árangur: „Bjarki, þetta var fyrir þig“ Sport Sá sem handtók Scheffler fylgdi ekki verkreglum en ákærurnar standa Golf Allir á eitt við erfiðar aðstæður: „Þetta tók alveg á“ Íslenski boltinn Lögreglan kórónaði ömurlegan dag hjá Kane Körfubolti KA-menn kölluðu eftir hjálp sálfræðings Íslenski boltinn „Við erum sáttir með að vera bara seigir og ljótir“ Körfubolti Xavi hætti við að hætta en hefur nú verið rekinn frá Barcelona Fótbolti Enginn skotið eins mikið án þess að hitta: „Kane fékk bara galopna þrista, galopna“ Körfubolti „Sterkasta Subway deild frá upphafi“ Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi með tíu mörk í tíunda sigurleik toppliðsins í röð Óðinn skoraði sigurmark Kadetten í lífsnauðsynlegum sigri Íslendingarnir ekki meira með á leiktíðinni Lærisveinar Guðmundar í úrslit: Er eiginlega orðlaus Myndasyrpa: FH jafnaði metin með minnsta mun Uppgjörið og viðtöl: Afturelding-FH 27-28 | FH-ingar jöfnuðu einvígið Mikilvæg mörk frá Sigvalda Birni í fyrsta leik úrslitaeinvígisins Landsliðskonum fjölgar hjá Val Óðinn og félagar misstu frá sér fimm marka forskot „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin Sjá meira