Mexíkó í vegi lífshættulegs fellibyljar Kjartan Kjartansson skrifar 22. október 2018 13:18 Gervihnattamynd af Willu í austanverðu Kyrrahafi. Búist er við því að fellibylurinn gangi á land í Mexíkó á morgun eða aðra nótt. AP/NOAA
Yfirvöld á vesturströnd Mexíkó hafa gert ráðstafanir fyrir komu fellibyljarins Willu sem stefnir nú hraðbyri þangað. Willa er orðin að nærri því fimmta stigs fellibyl og hefur Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna varað við því að afleiðingar hennar gætu orðið „lífshættulegar“. Búist er við sjávarflóðum, stormi og úrhelli í suð- og miðvesturhluta Mexíkó frá og með morgundeginum. Willa gæti orðið að fimmta stigs fellibyl síðar í dag og skapað lífshættulegan sjógang, að sögn AP-fréttastofunnar. Hann gæti gengið á land á morgun eða aðfaranótt miðvikudags. Viðvaranir hafa verið gefnar út víða meðfram vesturströnd Mexíkó. Í Sinaloa- og Nayarit-ríkjum hafa yfirvöld lokað skólum við ströndina og byrjað að undirbúa neyðarskýli. Fellibylsmiðstöðin Bandaríkjanna spáir að 15-30 sentímetra úrkoma fylgi Willu. Á sumum stöðum gæti úrkoman náð allt að 45 sentímetrum. Hætta er talin á skyndiflóðum og aurskriðum í fjalllendi.
Mexíkó Mest lesið Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Erlent Fluttur slasaður frá Selfossi með þyrlu Landhelgisgæslunnar Innlent Dæmi um að börn þori ekki út í frímínútur Innlent Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fundu loks heitt vatn í Tungudal Innlent Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Segir veginn ekki hafa gefið sig Innlent Segir Enok hafa setið fyrir manni sem stakk hann hálfu ári áður Innlent Fleiri fréttir Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Átta á sjúkrahúsi eftir mikla ókyrrð 700 talin af vegna aurskriðu í Papúa Nýju-Gíneu Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Halda áfram árásum á Rafah Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun „Við munum vinna þennan slag“ Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Skoða að leyfa árásir í Rússlandi með bandarískum vopnum Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Kínverjar æfa innrás á Taívan Níu létust á framboðsfundi Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Höfða mál gegn hundrað lögregluþjónum vegna árásarinnar í Uvalde Boðar til kosninga í Bretlandi í sumar Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti Sjá meira