Innlent

Höfuðborgarbúar kvarta undan írskum farandverkamönnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mál farandverkamannanna eru til skoðunar hjá lögreglu, m.a. hvort tilskilin leyfi séu fyrir hendi.
Mál farandverkamannanna eru til skoðunar hjá lögreglu, m.a. hvort tilskilin leyfi séu fyrir hendi. Getty
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarið borist allnokkuð af kvörtunum vegna írskra farandverkamanna. Mennirnir hafa boðið íbúum í umdæminu þrifþjónustu, m.a. háþrýstiþvott á hús og bílaplön.

Tilkynnendur, oft á tíðum eldri borgarar, lýsa verulegum óþægindum vegna samskipta við mennina. Þeir segja þá mjög aðgangsharða og alveg einstaklega ýtna og freka. Einnig hefur komið upp ágreiningur vegna upphæðar, sem var rukkuð eftir að þjónustan var veitt og kvittana sem treglega gekk að fá.

„Það er því að mörgu að huga þegar verkkaup eru annars vegar og eru húseigendur beðnir að hafa það í huga,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

Mál farandverkamannanna eru til skoðunar hjá lögreglu, m.a. hvort tilskilin leyfi séu fyrir hendi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×