Innlent

Segir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum hlægilega

Jakob Bjarnar skrifar
Smári McCarthy furðar sig á aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar sem hann telur hina snautlegustu.
Smári McCarthy furðar sig á aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar sem hann telur hina snautlegustu.
Smári McCarthy þingmaður Pírata var ómyrkur í máli í ræðupúlti Alþingis nú fyrir stundu í sérstakri umræðu um skýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC). Smári McCarthy, sem var málshefjandi en til andsvara var Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sagði skýrsluna hryllingslestur.

„Stutta útgáfan er að eini möguleikinn okkar til að takmarka hnattræna hlýnun við 1.5°C meðalaukningu á heimsvísu felst í því að hætta að nota jarðefnaeldsneyti eins hratt og hægt er, og breyta íslenskum iðnaði þannig að útblæstri koltvísýrings verði hætt. Töluverð föngun kolefnis getur frestað þessari niðurstöðu tímabundið, en eingöngu stórar breytingar á forsendum samfélagsins munu koma í veg fyrir ástand þar sem í besta falli milljónir deyja, þúsundir tegunda þurkast út og lífvænleiki jarðarinnar verður verulega skaddaður.“

Upp á líf og dauða fyrir mannkynið

Smári sagði að ef til vill væri vert að láta versta tilfellið liggja milli hluta en vísindin væru skýr um að þetta væri er umræða upp á líf og dauða fyrir allt mannkynið.

„Í þeirri fullyrðingu er engin óþarfa drama ─ þetta er blákaldur veruleikinn.“

Þetta var innleiðing í harða gagnrýni á loftslagsáætlun ríkisstjórnarinnar en þar telur Smári koma glögglega í ljós að áætlunin mun ekki bjarga neinu.

„Hún var ekki nógu góð áður en ný skýrsla IPCC kom út, en núna er hún hlægileg.“

 

Hlægileg aðgerðaáætlun

Smári segir engin skýr markmið að finna í áætluninni um hversu mikinn samdrátt í CO2-losun eigi að fylgja hverri aðgerð. Flestar aðgerðirnar snúast bara um ómarkvissa tilfærslu peninga eða áætlunargerð, eins og það eitt muni bjarga einhverju.

„Losun Íslands eru 4,3 milljónir tonna koltvísýrings árlega. Til að ná markmiðum Parísarsamningsins fyrir 2030 þarf CO2 losun að vera komin í rétt um 3 milljónir tonna á ári. Við höfum 12 ár til að draga úr þessari losun, eða línulega um 83 þúsund tonna árlegan samdrátt í losun.“

Þetta er ekki nóg, að sögn Smára. Ekki nálægt því. „Lausn í loftslagsmálum verður ekki keypt fyrir tæplega 0.1% af árlegum fjárlögum ríkisins.“

Umræðan um þessi mál er nú yfirstandandi á þinginu og er óhætt að segja að skýjað sé yfir þingmönnum vegna þessa umfjöllunarefnis.


Tengdar fréttir

Loftslagsbreytingar lumbra á norðurskautinu

"Við erum ekki nálægt því að vera tilbúin með verkefni, áætlanir og stefnumörkun til þess að byggja upp þol fyrir þessum breytingum,“ segir fyrrum vísindaráðgjafi Baracks Obama fyrrverandi Bandaríkjaforseta.

Sérfræðingar við Hringborð norðurslóða vara heimsbyggðina við

Allir helstu sérfræðingar heims í loftslagsmálum á Hringborði norðursins í Hörpu vara heimsbyggðina við því sem er að gerast á norðurslóðum. Samkvæmt nýlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna gerast loftslagsbreytingarnar hraðar en áður var talið. Mannkynið hafi aðeins rúman áratug til að forða meiriháttar hamförum á jörðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×