Innlent

Játuðu hjá lögreglu en neita fyrir dómi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður Kristinsson í dómsal á dögunum.
Sigurður Kristinsson í dómsal á dögunum. Vísir/Vilhelm
Sigurður Kristinsson neitaði sök þegar hann tók afstöðu til ákæru héraðssaksóknara í svokölluðu Skáksambandsmáli í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Fyrirtaka er fyrirhuguð í málinu í nóvember og má reikna með því að aðalmeðferð verði í janúar.

Málið hefur verið kennt við Skáksamband Íslands þar sem reynt var að fela fíkniefnin í skákmunum og senda í húsakynni sambandsins þar sem þau átti að nálgast. Fíkniefnin bárust þó aldrei til landsins þar sem lögreglan komst á snoðir um málið og skipti þeim út fyrir gerviefni í lok desember.

Sigurður er ákærður fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað innflutninginn á amfetamíninu, sem ætlað hafi verið til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.

Verjandi Sigurðar, Stefán Karl Kristjánsson, fór fram á frest til afstöðutöku við þingfestingu málsins þann 5. október sökum þess hversu viðamikil gögn málsins væru og ekki hefði náðst að fara yfir þau öll. Margt þyrfti enn að skýra í tengslum við málið áður en Sigurður geti hugsað sér að taka afstöðu. Sigurður neitaði sök í morgun en hafði áður játað sök í málinu við skýrslutöku lögreglu.

Sætir farbanni

Tveir menn á þrítugsaldri eru líka ákærðir í málinu. Annar þeirra, sem gefið var að sök að hafa tekið á móti fíkniefnunum og falið þau í rjóðri, játaði sök í héraðsdómi á dögunum en hafnaði því að hann hefði vitað að um fíkniefni hefði verið að ræða. Sagðist hann hafa talið að í pakkanum væru sterar. Þá hafi hann tekið á móti efnunum gegnniðurfellingu á smávægilegri skuld.

Þriðji maðurinn neitaði sök líkt og Sigurður í morgun en Haukur Örn Birgisson, verjandi hans, óskaði einnig eftir fresti við þingfestinguna á dögunum.

Sigurður var úrskurðaður í gæsluvarðhald sem hann sætti í þrjá mánuði eftir að hann kom hingað til lands frá Spáni í lok janúar. Hann hafði áður játað sök í málinu og hefur verið í farbanni síðan hann losnaði úr varðhaldi. Verjandi Sigurðar hefur gagnrýnt seinagang í rannsókn málsins. Lögregla bar því fyrir sig að tafir hefðu orðið á afhendingu gagna frá lögregluyfirvöldum á Spáni og því hefði rannsóknin dregist.

Sigurður er fyrrverandi eiginmaður Sunnu Elvíru Þorkelsdóttur sem féll úr mikilli hæð á heimili þeirra á Spáni í upphafi árs og lamaðist en málið vakti mikla athygli á sínum tíma. Í apríl var Sigurður ákærður fyrir meiriháttar skattalagabrot í tengslum við reksturinn á verktakafyrirtækinu SS verk. Fyrrverandi tengdamóðir hans, Unnur Birgisdóttir, var einnig ákærð í málinu.


Tengdar fréttir

Játaði hjá lögreglu en fer nú fram á frest

Sigurður Kristinsson óskaði eftir fresti til að taka afstöðu til sakargiftar við þingfestingu í Skáksambandsmálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Sigurður áfram í farbanni

Sigurður Kristinsson hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi farbann til 4. október næstkomandi. Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×