Watford og Bournemouth í góðum málum en vandræði á Fulham | Öll úrslit dagsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
System.Threading.Tasks.Task`1[Microsoft.AspNetCore.Html.IHtmlContent]
Bournemouth heldur áfram að gera frábæra hluti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og vandræði Fulham halda áfram.

Bournemouth vann 3-0 sigur á Fulham á útivelli. Callum Wilson skoraði eitt mark í fyrri hálfeik og bætti svo við öðru í síðari hálfleik auk þess að David Brooks bætti við marki í síðari hálfleik.

Eddie Howe heldur áfram að gera magnaða hluti með Bournemouth sem er í sjötta sætinu með 20 stig. Fulham er í átjánda sætinu með fimm stig. Vonbrigði þar á bæ.

Brighton er komið upp í ellefta sæti deildarinnar eftir eftir 1-0 sigur á Wolves á heimvaelli. Glenn Murray reyndist enn og aftur drjúgur fyrir Brighton en hann skoraði sigurmarkið.

Brighton er, eins og áður segir, í ellefta sæti deildarinnar með fjórtán stig en Wolves er tveimur sætum ofar með einu stigi meira.

Watford rúllaði svo yfir Huddersfield 3-0 en Watford er í sjöunda sæti deildarinnar. Huddersfield hefur gengið skelfilega það sem af er og er á botninum með þrjú stig.

Southampton og Newcastle gerðu svo markalaust jafntefli í grannaslag. Southampton í sextánda sætinu með sjö stig en Newcastle í nítjánda með þrjú.

Miðstöðin: Enska úrvalsdeildin

Leikir dagsins