Enski boltinn

Hoddle fluttur á sjúkrahús

Dagur Lárusson skrifar
vísir/getty
Glen Hoddle, fyrrum þjálfari Engands, hefur verið fluttur á sjúkrahús eftir að hann hneig niður í sjónvarpssveri BT á Englandi í dag.

 

Glen Hoddle átti að koma fram í sjónvarpsþætti á stöðinni í dag þar sem hann og fleiri áttu að fylgjast með leikjum í ensku úrvalsdeildinni en þættinum var aflýst vegna þessa atviks.

 

Gary Lineker, fyrrum liðsfélagi Hoddle, hefur sent honum skilaboð á twitter og óskar honum góðs bata en ekki er vitað um ástand Hoddle að svo stöddu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×