Fyrst harmleikur, síðan farsi Þorvaldur Gylfason skrifar 12. október 2018 10:00 Ef fjórir menn brjótast inn og þrem þeirra tekst að forða sér áður en lögreglan kemur á vettvang, á löggan þá að sleppa hinum fjórða? Það virðist vera skoðun þeirra sem telja að rangt hafi verið að draga Geir Haarde fv. forsætisráðherra fyrir Landsdóm eftir hrun úr því að þrír aðrir meintir sökudólgar sluppu – eða öllu heldur var sleppt. En bíðum við. Ef fjórir menn brjótast inn, löggan kemur á vettvang og gómar alla fjóra en sleppir þrem í fáti, á hún þá einnig að sleppa hinum fjórða? Ætti hún ekki heldur að sækja hina þrjá? – einkum ef í ljós kemur að hinn fjórði er fundinn sekur.Mildur dómur Kröfur um að Alþingi eða einstakir þingmenn biðji fv. forsætisráðherra afsökunar hlýtur að þurfa að skoða í ljósi þess að hann var fundinn sekur um brot gegn stjórnarskránni og einnig að Mannréttindadómstóll Evrópu fann ekkert athugavert við málsmeðferðina og sýknaði því ríkið af kröfum ráðherrans. Dómurinn yfir honum var mildur miðað við aðstæður enda fór Landsdómur allhörðum orðum um embættisfærslu hans að ýmsu leyti þótt dómurinn sýknaði hann af flestum ákæruliðum. Þetta fékk fólkið í landinu þó ekki að heyra milliliðalaust þar eð hvorki var útvarpað né sjónvarpað frá réttarhaldinu öndvert því sem tíðkast í öðrum löndum. „Hafi einhvern tímann verið ástæða til að … senda beint úr dómssal þá er það í Landsdómsmálinu … Það væri miklu öruggara að geta stuðst við frásagnir þeirra sem þarna eru leiddir upp í vitnastúku án milliliða.“ Þetta sagði Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur, nú forseti Íslands. „Blekktur“ Eftir sektardóminn í Landsdómi 2012 var Geir Haarde skipaður sendiherra Íslands í Bandaríkjunum frá 2015. Hann birtist landsmönnum í sjónvarpi 3. október sl., þrem dögum áður en meint brot varðandi lán Seðlabankans til Kaupþings fyrntist, sagðist hafa verið blekktur og bætti við: „þessir peningar fóru, eftir því sem ég best veit, eitthvað annað en til stóð“. Hann hefði í ljósi fyrningarfrestsins mátt segja þetta fyrr. Kannski hefði það þó engu breytt. Seðlabankamenn grunaði þetta enda lofuðu þeir rannsókn fyrir löngu. Ekki bólar enn á niðurstöðu hennar. Sérstakan saksóknara grunaði þetta, enda gerðu starfsmenn hans húsleit hjá Kaupþingi í Lúxemborg 2010 m.a. til að reyna að finna féð. Það er ófundið enn. Þeir sem hafa vanrækt rannsóknir meintra sakamála og leyft þeim að fyrnast mættu gjarnan hugleiða 141. grein almennra hegningarlaga: „Opinber starfsmaður, sem sekur gerist um stórfellda eða ítrekaða vanrækslu eða hirðuleysi í starfi sínu, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.“Hverjir eru skríllinn? Í sjónvarpsviðtalinu 3. október s.l. sagði Geir Haarde einnig: „Menn voru að reyna að hefna sín á gömlum pólitískum andstæðingi og hans flokki þó svo að málið hafi síðan verið fært í lögfræðilegan búning.“ Svipuðum málflutningi hefur verið haldið uppi í Bandaríkjunum að undanförnu þar sem nýbakaður hæstaréttardómari hefur andmælt trúverðugum ásökunum um kynferðisofbeldi á unglingsárum með því að halda því fram eiðsvarinn frammi fyrir dómsmálanefnd Bandaríkjaþings að ásakanirnar séu sprottnar m.a. af hefnigirni Clinton-hjónanna. Repúblikanar kalla andstæðinga sína „skríl“ líkt og Geir Haarde og félagar hans gerðu eftir hrun. Nú er svo komið fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna að repúblikanar hafa náð langþráðum meiri hluta í réttinum, fimm atkvæðum gegn fjórum, þar sem tveir af fimm í meiri hlutanum hafa verið sakaðir með trúverðugum hætti um kynferðisáreiti. Aðeins rösklega þriðjungur viðmælenda Gallups treystir Hæstarétti Bandaríkjanna borið saman við tæpan helming 1975. Varla mun traust almennings í garð réttarins aukast eftir atgang síðustu vikna. Sagan endurtekur sig Árið 1963 var Vilhjálmur Þór, einn helzti virðingarmaður Framsóknarflokksins um sína daga og þá orðinn seðlabankastjóri, ásamt öðrum fundinn sekur í olíumálinu, einu mesta fjársvikamáli lýðveldissögunnar fram að því. Brotin voru framin 1950-60 og fólust m.a. í að komast hjá tollum með því að flytja olíu milli tanka. Kananum brá í brún þegar rússnesk olía fannst í bandarískum tönkum á Keflavíkurvelli. Yfirhylming stóð ekki til boða eftir að kaninn komst í málið. Einn var dæmdur í fjögurra ára fangelsi og aðrir í fjársektir. Vilhjálmur fékk dóm í undirrétti, vægan að vísu, og var sýknaður í Hæstarétti 1963 með þeim rökum að sök hans væri fyrnd. Kristján Pétursson löggæzlumaður lýsir málinu í bók sinni Margir vildu hann feigan (1990). Árið eftir, 1964, var Vilhjálmur Þór kjörinn í stjórn Alþjóðabankans í Washington fyrir hönd Norðurlanda og sat þar til 1966, árið sem hann varð 67 ára. Það gerðist svo 5. október sl. þegar einn dag vantaði upp á tíu ára afmæli hrunsins og fyrningu meintra brota að Geir Haarde sendiherra var skipaður í sama starf. Karl Marx sagði: „Sagan endurtekur sig, fyrst sem harmleikur, síðan sem farsi.“ Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Halla, ekki Kata Sævar Þór Jónsson Skoðun Halldór 01.06.2024 Halldór Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir Skoðun Getur reiði valdið veikindum? Sigurbjörg Jónsdóttir Skoðun Taktísk skilyrðing umræðunnar Magnús Davíð Norðdahl, Skoðun Ráðherrar hafa áhyggjur af valdbeitingu Tómas Ingvason Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Halla, ekki Kata Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Getur reiði valdið veikindum? Sigurbjörg Jónsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrar hafa áhyggjur af valdbeitingu Tómas Ingvason skrifar Skoðun Taktísk skilyrðing umræðunnar skrifar Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Sjá meira
Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir skrifar
Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir Skoðun