Hollendingar völtuðu yfir Þjóðverja

Smári Jökull Jónsson skrifar
Memphis Depay skorar framhjá Manuel Neuer í leiknum í kvöld.
Memphis Depay skorar framhjá Manuel Neuer í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Hollendingar unnu óvæntan stórsigur á Þjóðverjum í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld. Lokatölur urðu 3-0 og Þjóðverjar sitja þar með á botni riðilsins með aðeins eitt stig eftir tvo leiki.

Liðin eru í riðli með heimsmeisturum Frakka sem eru efstir í riðlinum eftir að hafa gert jafntefli við Þjóðverja í fyrstu umferðinni og svo unnið Hollendinga. Það var því að duga eða drepast fyrir hollenska liðið í kvöld sem hefur ekki átt góðu gengi að fagna síðustu misseri.

Bæði lið mættu með helstu stórstjörnur sínar til leiks. Virgil Van Dijk, leikmaður Liverpool, spilaði í miðri vörn Hollendinga í kvöld og það var hann sem skoraði fyrsta mark leiksins á 30.mínútu.

Undir lokin bættu Hollendingar svo við tveimur mörkum. Memphis Depay skoraði á 87.mínútu og Georginio Wijnaldum átti lokaorðið á 90.mínútu og tryggði 3-0 sigur.

Frakkar og Þjóðverjar mætast í þessum riðli á þriðjudaginn í Frakklandi þar sem bæði lið hafa mikið að sanna, Frakkar eftir jafnteflið gegn Íslandi á fimmtudag og Þjóðverjar eftir úrslitin í kvöld.

Í B-deildinni mættust Danir og Írar í Dublin. Fátt var um fína drætti og skildu liðin jöfn, lokatölur 0-0. Danir eru efstir í riðlinum með fjögur stig en Írar eru neðstir með eitt. Wales er síðan í öðru sætinu með þrjú stig en Írar og Walesverjar mætast í nágrannslag á þriðjudag í Cardiff. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira