Fótbolti

Svona var blaðamannafundur Hamrén og Birkis

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Vísir var með beina sjónvarpsútsendingu og textalýsingu frá blaðamannafundi KSÍ sem fór fram á Laugardalsvelli klukkan 10.30 í dag. Tilefnið er leikur Íslands og Sviss í Þjóðadeild UEFA á morgun, mánudag.

Íslendingar gerðu 2-2 jafntefli við heimsmeistara Frakklands ytra á fimmtudag sem voru kærkomin úrslit eftir tvö slæm töp í Þjóðadeildinni í september, fyrstu leikjum Erik Hamren sem landsliðsþjálfara. 

Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir Ísland upp á að enda í efsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn í riðla undankeppni EM 2020. Hamrén lítur einnig á þennan leik sem mikilvægan hlekk í þeirri undankeppni.

Leikurinn á morgun fer fram klukkan 18.45 og hefst upphitun á Stöð 2 Sport klukkan 17.45. Upptöku af fundinum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×