Innlent

Dýr deila um eignafyrirkomulag lagna og frárennslis

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Fjórar íbúðir eru í húsinu á Bústaðavegi 99 og 101.
Fjórar íbúðir eru í húsinu á Bústaðavegi 99 og 101. Fréttablaðið/Eyþór
Deila um eignafyrirkomulag á frárennslis- og skólplögnum Bústaðavegs 99-101 endaði með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að um sameign húseigenda væri að ræða. Málið var dæmt stefndu í óhag og þurftu þau að auki að greiða 2,5 milljónir í málskostnað.

Húsið sem um ræðir er tveggja húsnúmera fjöleignarhús, byggt árið 1956, með fjórum íbúðum, tveimur íbúðum á hvoru húsnúmeri. Eigendur austurhluta hússins töldu að lagnir hússins væru séreign hvers um sig en eigendur vesturhlutans að um sameign allra eigendanna fjögurra væri að ræða.

Lagnir í austurhlutanum voru endurnýjaðar að mestu árið 2014 en árið 2015 töldu eigendur vesturhlutans rétt að lagfæra þær sín megin. Austurhlutaeigendur töldu þá að þeim væri óskylt að taka þátt í kostnaði sem af því hlaust og var dómsmál því höfðað.

Stefnendur málsins, eigendur vesturhlutans, létu dómkveðja matsmann til að meta ástand lagnanna. Því mati vildu hinir eigendurnir ekki una og fóru fram á yfirmat. Var það nær samhljóða því fyrra um að lagnakerfin væru að mestu aðskilin, viðhald væri aðkallandi og að viðgerð austurhlutans árið 2014 hefði ekki verið fullnægjandi.

Í niðurstöðu dómsins sagði að þó kerfin væru að mestu aðskilin þá rynnu frárennsli regnvatns og aðkoma að stofnlögn saman. Vanræksla hluta kerfisins væri til þess fallin að raska hagsmunum allra. Sanngjarnast væri fyrir heildina að meta kerfið sem eina heild og að kostnaður við viðgerð skiptist jafnt niður á eigendur eftir hlutfallstölu eignarhluta. Kröfu um að nauðsynlegt væri að ráðast í viðgerðir var hins vegar vísað frá dómi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×