Fótbolti

Messi aðeins bestur í fjórða sinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lionel Messi hefur spilað vel í vetur eins og alltaf.
Lionel Messi hefur spilað vel í vetur eins og alltaf. vísir/getty
Lionel Messi hefur verið valinn leikmaður septembermánaðar í spænsku úrvalsdeildinni. Ótrúlegt en satt er þetta aðeins í fjórða sinn sem hann fær þessi verðlaun.

Messi spilaði fimm leiki í mánuðinum og skoraði í þeim þrjú mörk og lagði upp fjögur önnur.

Ferill Messi hjá Barcelona hefur verið einstakur og það er í raun lygilegt að hann sé aðeins að fá þessi verðlaun í fjórða sinn.

Metið er fimm sinnum og það á Antoine Griezmann. Cristiano Ronaldo var aðeins valinn leikmaður mánaðarins þrisvar sinnum meðan hann lék þar í landi.

Þar til í dag höfðu Ronaldo og Messi samanlagt verið bestir sex sinnum í deild sem þeir drottnuðu í um árabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×