Túrverkja- og tíðarhvarfamiðstöð? Inga María Hlíðar Thorsteinson skrifar 18. október 2018 18:52 Það kom lítið á óvart þegar fréttir bárust af því að heilbrigðisráðherra vildi stefna að opnun heilsugæslu fyrir konur að nokkrir læknar myndu rísa upp á móti þeirri hugmynd. Í hvert skipti sem heilbrigðisráðherra og forverar hennar í starfi hafa komið með hugmyndir um að nýta mannauð heilbrigðiskerfisins betur hafa fáir en háværir læknar risið upp á móti og lýst yfir andstöðu við slík áform. Það er ekki að undra, enda skiljanlegt að mörgum þyki erfitt sé að treysta á þekkingu annarra með þá löngu menntun og þjálfun sem þeir hafa. Dæmigerð viðbrögð Þegar öllu er á botninn hvolft er þó ólíklegt að sérfræðingur í gigtar- og lyflæknisfræði, sem tjáði sig opinberlega um þetta mál sé með sömu þekkingu og skilning á þörf kvenna fyrir heilbrigðisþjónustu er lítur að barneignum og/eða kvillum sem tengjast kvenlíffærum og ljósmóðir sem hefur sérhæft sig í þessum málum. Því er mikilvægt að raddir þeirra sem rísa upp á móti hugmyndum til að bæta heilbrigði kvenna nái ekki brautargengi eingöngu vegna stöðu þeirra í valdapýramída heilbrigðiskerfisins. Er Svandís „gengin af göfflum og skeiðum og hnífum“? ...Líkt og annar læknir hélt fram í sömu umfjöllun. Nei, þessi hugmynd er ekki sjálfsprottin af íslenskum ljósmæðrum eða heilbrigðisráðherra líkt og halda mætti af umfjölluninni um málið. Í Hollandi, Svíþjóð og Bretlandi hafa Ijósmæður t.a.m. leyfi til að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum að loknu sérstöku námskeiði í lyfjafræði. Skilvirkni þjónustunnar er mikil þar sem ljósmæður geta bæði veitt ráðgjöf um getnaðarvarnir og ávísað hormónatengdum getnaðarvörnum til heilbrigðra kvenna. Í grundvallaratriðum fela áform Svandísar í sér að ljósmæður myndu sinna sérstakri þjónustu við konur á heilsugæslustöð eða móttöku, líkt og tíðkast t.d. í Svíþjóð undir nafninu Kvinnohälsa. Þar í landi eru þetta ljósmóðurreknar móttökur sem bjóða upp á mæðravernd, getnaðarvarnarráðgjöf, leghálsstrok, ráðgjöf og fleira sem tengist kvenlíkamanum. Ljósmæðurnar eru í samstarfi við kvensjúkdómalækna og vísa skjólstæðingum sínum þangað ef þörf er á. Það sem liggur að baki er að ýmsar upplýsingar um heilsufar og vandamál koma upp á yfirborðið í mæðravernd, sem snúa bæði að heilsufari tengt meðgöngu en einnig vegna kvenlíffæra konunnar og/eða sálfélagslegra aðstæðna. Ástæða þess að þessar upplýsingar koma fram í mæðravernd skýrist af tíðu eftirliti sem skapar traust samband ljósmóður og konu á meðgöngu. Eftir að barnið er fætt fellur þjónustan niður og eftirfylgnin er engin. Móttaka fyrir konur Ljósmæður sinna eftirliti, forvörnum, og meðferð í tengslum við barneignarferlið og þá kvilla og sjúkdóma sem geta komið upp í tengslum við kvenlíffæri þeirra. Líkt og Áslaug, formaður Ljósmæðrafélags Íslands bendir á, væri kvennamóttaka sem þessi hugsuð sem þjónusta við konur sem eru ekki endilega veikar. Það má því segja að þetta væri ráðgjafarþjónusta fyrir ýmislegt sem tengist kvenheilsu, svo sem sveppasýkingar, túrverkir, getnaðarvarnir, ófrjósemi og væg breytingaskeiðsvandamál. Einnig væri hægt að veita aðstoð við brjóstagjöf fyrir konur sem geta ekki lengur sótt þjónustu á sængurlegudeild Landspítalans. Heilsugæsla með sérstakri móttöku fyrir konur myndi hafa gríðarlegt forvarnargildi. Má t.a.m. nefna mikilvægi þjónustu fyrir meðgöngu (e. pre-pregnancy service) þar sem konur með sálfélagsleg og/eða líkamleg vandamál, svo sem offitu eða andlega vanlíðan, fá ráðgjöf og aðstoð við að skipuleggja barneignir til þess að ferlið verði sem ánægjulegast og öruggast. Má einnig nefna þjónustu eftir meðgöngu (e. post pregnancy service) þar sem konur mæta með 6 vikna gömul börn sín í eftirfylgd til þeirrar ljósmóður sem sinnti þeim í mæðravernd í eftirskoðun (ef þarf) og til að ræða fæðinguna og núverandi ástand. Hefur slíkt viðtal mikið forvarnargildi fyrir síðari barneignir ef um erfiða upplifun eða einhver vandamál er að ræða. Vitundarvakning Í upphafi læknisfræðinnar voru krufningar einungis gerðar á karlmönnum og gengið var út frá því að karl- og kvenlíkaminn væru í stórum dráttum eins. Síðustu áratugi hefur orðið vitundarvakning þar á og aukin athygli beinist nú að ýmsum sjúkdómum sem eiga rætur að rekja í hormónastarfsemi og líffæra kvenna, líkt og brjósta- og leghálskrabbamein, endómetríósa og fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS). Þá má nefna að Öryrkjabandalag Íslands samþykkti á aðalfundi sínum fyrr í þessum mánuði að taka samtök um endómetríósu inn í bandalagið með það að markmiði að veita konum með endómetríósu og aðstandendum þeirra enn betri þjónustu. Var það mikið fagnaðarefni þar sem endómetríósa er sjúkdómur sem leggst einungis á konur og hafa þær konur sem glíma við sjúkdóminn lengi mætt miklu skilningsleysi og fordómum, bæði innan heilbrigðiskerfisins og utan þess um langt skeið. Því fagna ég aukinni vitund samfélagsins um heilbrigði kvenna og hvet heilbrigðisráðherra Svandísi Svavarsdóttur um að standa við áform sín, þrátt fyrir háværar yfirlýsingar einstakra lækna.Inga María Hlíðar Thorsteinson,Ljósmóðir Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Útrýming mannsins á RÚV Vala Hafstað Skoðun Riðið á Bessastöðum? Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Leikskólakennara á eftirlaunum er ofboðið Ásdís Ólafsdóttir Skoðun Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Heillandi Halla Hrund Stefán Hilmarsson Skoðun Já, Katrín Hjálmar Sveinsson Skoðun Umræðan um dánaraðstoð Henry Alexander Henrysson Skoðun Að lifa í skugga heilsubrests Svanberg Hreinsson Skoðun Svik forsetaframbjóðanda við börnin á Gaza Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir Skoðun Óttasleginn mömmuher og Eurovision Birna Guðný Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vextir geta og þurfa að lækka Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Söngvakeppni og stríðsglæpir Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Leikskólakennara á eftirlaunum er ofboðið Ásdís Ólafsdóttir skrifar Skoðun Óttasleginn mömmuher og Eurovision Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Já, Katrín Hjálmar Sveinsson skrifar Skoðun Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Heillandi Halla Hrund Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Riðið á Bessastöðum? Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Að lifa í skugga heilsubrests Svanberg Hreinsson skrifar Skoðun Umræðan um dánaraðstoð Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Útrýming mannsins á RÚV Vala Hafstað skrifar Skoðun Opið bréf til samgönguráðherra og vegamálastjóra Hópur ferðaþjóna í Dölunum skrifar Skoðun Hugleiðingar ellilífeyrisþega um landsmálin og orkumálin Ingimundur Andrésson skrifar Skoðun Að tilheyra - Fjölmenningarþing Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Katrínu sem forseta Stefán Friðrik Stefánsson skrifar Skoðun Fegin að vera frekar spurð hvaðan ég sé, en „hverra manna ertu“ Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þekking á naloxone nefúða getur bjargað lífi Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Svik forsetaframbjóðanda við börnin á Gaza Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Getum við breytt fortíðinni? Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Á að banna TikTok? Óttar Birgisson skrifar Skoðun Gerum góðan dal enn betri Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Ný norræn stjórnarskrá Hrannar Björn Arnarsson,Ragnheiður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Getum við verið hamingjusöm í vinnunni? Héðinn Sveinbjörnsson skrifar Skoðun Þessum treysti ég til þess að standa vörð um okkar hagsmuni, landið okkar og okkar mannréttindi Ólafur Tryggvi Sigmarsson skrifar Skoðun Stærsta loftslagsráðstefna í heimi Nótt Thorberg skrifar Skoðun Er keisarinn ekki í neinum fötum? Hákon Gunnarsson ,Bergljót Kristinsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðing um sáttamiðlun Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Nöturlegt ævikvöld Elín Hirst skrifar Skoðun Hvað er eiginlega að gerast? Inga Minelgaite skrifar Skoðun Manstu ekki eftir mér Sævar Helgi Lárusson skrifar Sjá meira
Skoðun Fegin að vera frekar spurð hvaðan ég sé, en „hverra manna ertu“ Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Þessum treysti ég til þess að standa vörð um okkar hagsmuni, landið okkar og okkar mannréttindi Ólafur Tryggvi Sigmarsson skrifar