Íslendingar dæma Íslendinga á EM: „Alltaf pínu stressandi“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir í Lissabon skrifar 19. október 2018 15:15 Ágústa að störfum á EM í Portúgal mynd/kristinn arason
Íslenski hópurinn á EM í hópfimleikum er skipaður fleirum en bara keppendum og þjálfaraliði. Fjórir íslenskir dómarar eru með í för og þurfa þeir meðal annars að dæma íslenska keppendur. Ágústa Dan Árnadóttir er einn íslensku dómaranna á mótinu í Portúgal. Hún gaf sér tíma á milli dómgæslustarfa til þess að ræða við blaðamann um hvað felst í dómarastarfinu og hvernig sé að dæma vini sína frá Íslandi. „Á hverju áhaldi eru tveir mismunandi flokkar af dómurum, annars vegar dómarar sem dæma samsetningu og erfiðleika og hins vegar dómarar sem dæma framkvæmdina. Þeir sem eru að dæma framkvæmdina þeir byrja í 10 og draga frá ef einhver lendir ekki, fer ekki nógu hátt upp í loftið og svo framvegis. Þeir sem dæma samsetninguna og erfiðleikann þeir byrja í 0 og byggja sig upp. Þú færð stig fyrir það sem þú framkvæmir eftir fyrir fram ákveðnum reglum.“ Margra ára þjálfun og fjöldi prófa sem þarf að standastKeppni í hópfimleikum samanstendur af þremur áhöldum. Gólfi, þar sem keppendur framkvæma dans við tónlist og verður dansinn að innihalda ýmsar æfingar, eins og til dæmis jafnvægisæfingar. Á dýnu og trampólíni gerir liðið þrjár stökkseríur á hvoru áhaldi.Dansæfingar krefjast erfiðra jafnvægisæfingamynd/kristinn arasonFremstu þjóðirnar framkvæma mjög flókin og hröð stökk og óþjálfað auga á litla möguleika á að sjá muninn á milli þjóðanna. Ágústa segir það ekki eins ógurlegt verk og það virðist að dæma þar á milli. „Við erum náttúrulega í góðri æfingu að sjá hvað er að. Maður skilur alveg að óvant auga sjái ekki litlu munina sem við sjáum, til dæmis þegar ein fór miklu betur upp í loftið heldur en önnur. Það er augljóst þegar einhver dettur að þá á það auðvitað ekki að vera þannig, en það eru litlu mínusarnir sem við sjáum.“ „Við sem komum frá Íslandi erum búnar að vera að dæma í mörg ár og fórum á alþjóðlegt dómaranámskeið úti þar sem að voru 10, 12 próf í mismunandi pörtum af dómgæslu, bæði bóklegt og verklegt, í öllum mismunandi sætum á öllum áhöldum. Það fellst mikil þjálfun í þessu.“ Dómgæsla er sjálfboðastarf og fá dómarar mótsins ekkert greitt fyrir þá vinnu sem þeir skila af sér. Hverju landi stendur til boða að senda fjóra dómara á mótið. Öll Norðurlöndin og Hollendingar sendu fjóra dómara til Portúgal, en Norðurlandaþjóðirnar hafa lengi verið þau bestu í hópfimleikum. Hefur oft þurft að dæma vini og liðsfélagaÞað er horft í öll smáatriði í stökkum keppendamynd/kristinn arasonEnginn dómaranna kemur frá landi sem ekki er með lið í keppni. Þegar horft er til stóru boltaíþróttanna kæmi það aldrei til greina að Íslendingur væri að dæma leik Íslands. Hvernig er að dæma íslensku liðin? „Það er alltaf pínu stressandi. Maður vill hvorki vera of ljúfur né of harður.“ „Maður vill helst vera í miðjunni og halda sinni línu sem maður er búinn að setja sér á mótinu. Það er alltaf pínu aukahjartsláttur þegar Ísland kemur upp en þetta bara venst,“ sagði Ágústa. Hún sagði það koma fljótt upp ef dómari væri of hliðhollur löndum sínum. „Það er þannig að það eru skýrar reglur um hver munurinn á milli dómaranna má vera. Það eru fjórar einkunnir fyrir hvert áhald og bæði má vera ákveðið mikið á milli hæstu og lægstu einkunnarinnar og svo líka á milli miðjueinkunnanna tveggja. Ef þú passar ekki inn í jöfnuna þá ertu skammaður og gætir þurft að breyta einkunninni þinni.“ Ágústa var sjálf í fimleikum í fjölmörg ár en hætti fyrir um sex árum. Hún var byrjuð að dæma áður en hún hætti sjálf iðkun og sagði það oft hafa komið fyrir að hún hafi þurft að dæma vini sína og fyrrum liðsfélaga. „Við erum á Íslandi og lang flestir hafa lent í þessu. Maður þarf bara að kúpla sig út,“ sagði Ágústa Dan Árnadóttir. Ágústa verður á meðal dómara í dag þegar blandað lið unglinga keppir í úrslitum á EM í Portúgal.
Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli Körfubolti Fleiri fréttir Bráðnaði ekki í hitanum á Filippseyjum og náði í silfur Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Í beinni: FH - Vestri | Bæði liðin á sigurbrautinni Þórir bæði með mark og stoðsendingu Bach býðst til að synda sjálfur í Signu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu „Ég sakna hennar á hverjum degi“ „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Dagskráin í dag: Grindvíkingar í heimsókn til Keflavíkur Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Sjá meira