Lífið

Þrettán ára stúlka kom, sá og sigraði: Brotnaði niður þegar Hudson talaði við hana

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kennedy Holmes þykir gríðarlega sigurstrangleg.
Kennedy Holmes þykir gríðarlega sigurstrangleg.
Hin þrettán ára Kennedy Holmes mætti í bandarísku útgáfuna af The Voice á dögunum og tók lagið Turning Tables með Adele.

Lagið flutti hún í blindu áheyrnaprufunum sem ganga út á það að dómararnir þurfa að snúa sér við í stólnum ef þeim líkar vel við flutninginn.

Holmes var algjörlega mögnuð og misstu dómararnir andlitið þegar þeir komust að því að hún væri aðeins 13 ára.

Jennifer Hudson, einn af dómurunum, er greinilega í miklu uppáhaldi hjá Holmes en hún fór að gráta þegar Hudson byrjaði að tala við hana.

Það hefur alltaf verið draumur hennar að fá að flytja lag með Hudson og fékk hún draum sinn uppfylltan í The Voice eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×