Lífið

„Þú ert í allt öðrum gæðaflokki en þeir sem við höfum séð hingað til“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Brendan Murray er að gera rosalega hluti í X-Factor.
Brendan Murray er að gera rosalega hluti í X-Factor.
„Þú ert í allt öðrum gæðaflokki en þeir sem við höfum séð hingað til. Það sem er einnig svo sjarmerandi við þig, þú hefur ekki hugmynd um það hversu góður þú ert,“ sagði X-Factor dómarinn Simon Cowell eftir að Brendan Murray hafði flutt lagið Everybody Hurts með R.E.M í sex stóla áskoruninni í þáttunum á dögunum.

Þar koma nokkrir söngvarar fram en aðeins sex af þeim komast áfram.

Louis Tomlinson, annar dómari í X-Factor, var svo hrifinn að hann stóð upp, hljóp að gullhnappinum og þrumaði í hann.

Hér að neðan má sjá flutninginn hjá þessum 21 árs söngvara sem þykir sá sigurstranglegasti í bresku útgáfunni af X-Factor í ár en þættirnir eru á dagskrá á Stöð 2 á föstudagskvöldum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×