Enski boltinn

Thierry Henry nýr stjóri Birkis?

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Henry glaður í bragði.
Henry glaður í bragði. vísir/getty
Thierry Henry gæti orðið nýr knattspyrnustjóri Birkis Bjarnasonar en hann er efstur á óskalista forráðamanna Aston Villa.

Steve Bruce var rekinn úr starfi stjóra Aston Villa í gær og segir Daily Mail frá því að Frakkinn sé efsti maður á blaði hjá Villa.

Henry er aðstoðarlandsliðsþjálfari Belga en hann er sagður vilja taka skrefið sem aðalþjálfari hjá félagsliði.

Villa er í 13. sæti ensku B-deildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Leeds. Birkir og félagar mæta Milwall á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×