Handbolti

Tandri og Björgvin Páll léku í jafntefli í Meistaradeildinni

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Tandri skoraði tvö mörk í dag
Tandri skoraði tvö mörk í dag vísir/anton
Tandri Már Konráðsson skoraði tvö mörk fyrir Skjern er liðið gerði jafntefli gegn Zagreb í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður spilaði lítið í leiknum og náði ekki að verja skot í sjö tilraunum.



Leikurinn var í járnum allan tímann og var jafnt í hálfleik 14-14.



Liðin skiptust á að hafa forystu í leiknum og náði Zagreb mest þriggja marka forystu. Skjern náði mest tveggja marka forystu.



Bæði mörk Tandra komu í seinni hálfleik en leikurinn endaði 31-31.



Skjern er í fjórða sæti í B-riðli Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×