Handbolti

Stefán með þrjú mörk í sigri Szeged

Dagur Lárusson skrifar
Stefán Rafn Sigurmannsson.
Stefán Rafn Sigurmannsson. vísir/getty
Stefán Rafn Sigurmannsson var  í eldlínunni fyrir Szeged í sigri liðsins í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag.

 

Stefán Rafn og félagar í Szeged mættu Motor Zaporozhye og voru með yfirhöndina nánast allan leikinn og fóru með örygga forystu í leikhlé.

 

Það var ekki fyrr en á lokakaflanum þar sem leikurinn varð æsipennandi en þá kom nýtt líf í liðsmenn Motor en þeir náðu að minnka muninn niður í eitt mark áður en flautað var til leiksloka og var lokastaðan 32-31. Stefán Raf skoraði þrjú mörk í leiknum.

 

Björgvin Páll Gústavsson sat allan leikinn á varamannabekk Skjern í tapi gegn Nantes.

 

Eftir leiki dagsins er Szeged í þriðja sæti riðilsins með sex stig á meðan Skjern er sæti neðar með fjögur stig. 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×