Mitrovic tryggði Fulham stig

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Mitrovic fagnar marki sínu
Mitrovic fagnar marki sínu vísir/getty
Fulham og Watford skildu jöfn í fjörugum leik á Craven Cottage í dag. Aleksandar Mitrovic tryggði Fulham stig í leiknum.

Andre Gray kom Watford yfir eftir 90 sekúndna leik. Fulham hefur lekið inn mörkum í deildinni til þessa og fá ekki mörg prik fyrir varnarleikinn í þessum leik.

Leikurinn var mjög fjörugur í fyrri hálfleik og áttu bæði lið fjölmörg færi. Það kom hins vegar ekki annað mark og staðan 0-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Slavisa Jokanovic gerði tvær breytingar í hálfleik og liðið kom miklu betur út í seinni hálfleikinn.

Seinni hálfleikurinn var ekki mikið rólegri en sá fyrri en eina mark hans kom á 78. mínútu þegar Mitrovic jafnaði metin eftir sendingu frá Luciano Vietto.

Mitrovic hefði getað stolið sigrinum fyrir Fulham á lokasprettinum þegar skalli hans eftir hornspyrnu fór í þverslánna.

Sigurmarkið kom ekki, niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira