Viðskipti innlent

New Yorker verslun opnuð í Kringlunni

Birgir Olgeirsson skrifar
Úr verslunarmiðstöðinni Kringlunni í Reykjavík.
Úr verslunarmiðstöðinni Kringlunni í Reykjavík. Vísir/Kringlan
Alþjóðlega tískuvörukeðjan NEW YORKER opnar í nóvember verslun í Kringlunni. Verslunin verður á annarri hæð verslunarmiðstöðvarinnar, þar sem verslunin Zara var áður til húsa. Þetta kemur fram í tilkynningu til fjölmiðla um opnun verslunarinnar en þar segir að átján þúsund manns starfi hjá fyrirtækinu New Yorker í 40 þjóðlöndum. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Braunschweig í Þýskalandi en verslanir eru nú yfir 1.000 talsins.

Helstu vörumerki NEW YORKER eru sögð AMISU, FB SISTER og CENSORED en ATHLETICS, SMOG og FSBN hafa einnig sinn sess í versluninni Kringlunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×