Handbolti

Guðjón Valur markahæstur og Stefán Rafn skoraði fjögur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón Valur í leik fyrr á tímabilinu.
Guðjón Valur í leik fyrr á tímabilinu. vísir/getty
Guðjón Valur Sigurðsson átti góðan leik fyrir Rhein-Neckar Löwen sem hafði betur gegn Meskhov Brest, 33-27, í Meistaradeild Evrópu í handbolta.

Guðjón var markahæstur í liði Ljónanna með sex mörk en Ljónin voru 18-13 yfir í hálfleik. Mikið skorað í Þýskalandi í kvöld.

Löwen er því með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leikina en liðið tapaði fyrsta leik riðilsins gegn Barcelona. Brest er einnig með fjögur stig.

Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði fjögur mörk fyrir Pick Szeged sem vann enn einn leikinn í ungversku úrvalsdeildinni.

Pick vann stórsigur á Ferencváros, 35-22, en Pick hefur unnið alla leiki sína í bæði deild og Meistaradeild það sem af er á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×