Handbolti

Skoraði þrjú mörk á sömu mínútunni │Myndband

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sigvaldi flýgur.
Sigvaldi flýgur. vísir/getty
Sigvaldi Guðjónsson átti stórleik fyrir Elverum í norsku bikarkeppninni í gær. Hann náði þeim ótrúlega árangri að skora þrjú mörk á einni mínútu.

Elverum vann Runar 31-26 á heimavelli og skoraði Sigvaldi 9 af mörkum Elverum í leiknum.

Þrjú af þessum mörkum komu á einnar mínútu kafla, á tíma þegar Elverum var tveimur leikmönnum færri inni á vellinum.

Myndband af þessu ótrúlega afreki má sjá hér að neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×