Innlent

Samtrygging fjórflokksins stórfurðuleg

Sveinn Arnarsson skrifar
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, er ósátt.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, er ósátt.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, gagnrýnir hvernig skipað er í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga en landsþing flokksins fer nú fram á Akureyri. Hún segir reglur sambandsins tryggja ítök gömlu valdaflokkanna á kostnað hinna.

„Fráfarandi stjórn skipar valnefnd sem kemur með tillögu um næstu stjórn. Þar er staðinn vörður um fjórflokkinn með mælikvörðum sem sambandið sjálft setur sér. Það tekur ekki tillit til nýrra framboða sem er fjórði stærsti flokkurinn og vann stórsigur í síðustu kosningum,“ segir Vigdís. „Það var gerð tillaga um það að stjórn Sambands sveitarfélaga yrði skipuð fjórflokknum með því skrýtna afbrigði að Reykjavíkurborg hefur frjálst val um þrjá fulltrúa. Það er ekki tekið tillit til nýrra framboða eða óháðra. “

Í dag verður ellefu manna stjórn kosin auk þess sem Sjálfstæðisfólkið Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, bjóða sig fram til formanns. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins virðast Sjálfstæðismenn ekki hafa komið sér saman um nýjan formann en þeir eru langstærsti flokkurinn á þinginu.

Vigdís segir stjórnarkjörið sýna samtryggingu fjórflokksins. „Tillaga að nýrri stjórn sambandsins endurspeglar ekki úrslit sveitarstjórnarkosninga og það er stórfurðulegt,“ segir Vigdís.

„Ég var á þingi og varð aldrei vitni að svona vinnubrögðum. Hér ríkir ekkert lýðræði eins og menn tala fjálglega um á tyllidögum.“




Tengdar fréttir

Sveitarstjórnarstigið til framtíðar

Sveitarstjórnarfólk um allt land er í óða önn að leggja línur fyrir starfsemi síns sveitarfélags á yfirstandandi kjörtímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×