Innlent

Mynd úr vefmyndavél Vegagerðarinnar sýnir staðsetningu lögreglubílsins skömmu fyrir áreksturinn

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Hér má sjá staðsetningu lögreglubifreiðarinnar skömmu fyrir áreksturinn. Inni í stærri hringnum má sjá myndina í aðdrætti
Hér má sjá staðsetningu lögreglubifreiðarinnar skömmu fyrir áreksturinn. Inni í stærri hringnum má sjá myndina í aðdrætti Skjáskot úr vefmyndavél Vegagerðarinnar
Það þykir með ólíkindum að engin skuli hafa slasast alvarlega þegar bifreið var ekið aftan á lögreglubifreið á Suðurlandsvegi við Bláfjallaafleggjara um miðjan dag í gær. Fimm voru fluttir á slysadeild til skoðunar.





Skjáskot úr vefmyndavél Vegagerðarinnar rétt áður en áreksturinn verðurSkjáskot úr vefmyndavél Vegagerðarinnar
Málsatvik voru þau að lögreglumenn voru við hraðamælingar á Suðurlandsvegi og höfðu mælt ökumann við hraðakstur og stöðvað hann skammt vestan Bláfjallaafleggjara. Voru þeir að ræða við ökumann inni í lögreglubifreiðinni þegar ekið var aftan á hana á miklum hraða.

Aðstæður á staðnum eru þannig að Suðurlandsvegur hefur tvær akreinar í hvora átt og liggur vegurinn beinn á löngum kafla. Vegöxlin er breið og er hún skilin frá veginum með óbrotinni línu.

Er áreksturinn varð var lögreglubifreiðin vel fyrir utan akreinina og ekki inni á veginum og með blá blikkandi ljós, öðrum við viðvörunar.



Eins og sjá má kastaðist lögreglubíllinn yfir veginn við áreksturinn.Visir/Jóhann K. Jóhannsson
Lögreglumenn vinna eftir ákveðnum og mjög skýrum verklagsreglum þegar ökutæki er stöðvað, líkt og atvikaðist Suðurlandsvegi í gær. Mynd úr vefmyndavél Vegagerðarinnar við Sandskeið, frá því um miðan dag í gær, skömmu fyrir áreksturinn, sýnir stöðu lögreglubifreiðarinnar og ökutækisins, sem þeir voru búnir að stöðva, vel.





Eins og sjá má er lögreglubíllinn afar illa farinn eftir áreksturinn og með ólíkindum að tveir lögreglumenn og ökumaður annars bíls hafi ekki hlotið alvarleg meiðsli.Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Það sem vekur athygli miðað við stöðu lögreglubifreiðarinnar er að bifreiðin sem ekur aftan á, klessir á hægra afturhorn og hefur því þurft að hafa verið ekið á vegöxlinni. Við áreksturinn kastast lögreglubifreiðin yfir veginn sem styður það að lögreglumenn á vettvangi hafi stillt lögreglubílnum upp eftir verklagsreglum. Það er að ef árekstur verður skulu dekk höfð í beygju svo bíllinn lendi ekki á bílnum fyrir framan.

Tildrög slyssins eru enn til rannsóknar en samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu slasaðist enginn alvarlega.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×