Handbolti

Aron og félagar með þriðja sigurinn í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron Rafn í leik með ÍBV á síðustu leiktíð.
Aron Rafn í leik með ÍBV á síðustu leiktíð. vísir/bára
Aron Rafn Eðvarsson og félagar í HSV Hamburg eru komnir á beinu brautina í þýsku B-deildinni í handbolta en þeir unnu þriðja sigurinn í röð í kvöld.

Liðið mætti HC Elbflorenz 2006 sem hafði ekki unnið leik er liðin mættustí kvöld en jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik.

HSV var með yfirhöndina í hálfleik 12-13 og eftir spennuþrungnar lokamínútur höfðu þeir sigur á útivelli með tveimur mörkum, 26-24.

Aron Rafn náði ekki að klukka marga bolta í fyrri hálfleik en átti hinn fínasta síðari hálfleik samkvæmt tölfræði þýsku deildarinnar.

Hamburg er nú komið með sex stig og er í fimmta sæti deildarinnar en eftir þrjá tapleiki í fyrstu þremur leikjunum hafa fylgt þrír sigrar nú í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×