Handbolti

Bjarki Már með þrjú mörk í mikilvægum sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bjarki Már skoraði þrjú mörk í dag.
Bjarki Már skoraði þrjú mörk í dag. vísir/getty
Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk er Füchse Berlín vann þriggja marka sigur á Magdeburg, 27-24, íþýsku úrvalsdeildinni í dag.

Magdeburg byrjaði betur en frá miðjum fyrri hálfleik tóku Berlínar-refirnir við sér. Þeir voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 14-10.

Mikilvægur sigur hjá Füchse sem er nú komið upp að hlið Kiel í fjórða sæti deildarinnar en Bergrischer og Göppingen eru einnig með átta stig.

Bjarki Már skoraði þrjú mörk fyrir Füchse en markahæstur var Svíinn Matthias Zachrisson sem skoraði fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×