Enski boltinn

Mourinho um fallið á Wembley: „Gerði þetta af ásettu ráði“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mourinho var í stuði í gær.
Mourinho var í stuði í gær. vísir/getty
Það vakti mikla kátínu viðstaddra er Jose Mourinho féll um koll er hann reyndi að komast yfir girðingu á leik Englands og Spánar í síðustu viku.

Myndband af Mourinho falla um koll gekk á netmiðlum en þegar Mourinho var spurður út í þetta á blaðamannafundi í gær var Portúgalinn hinn léttasti.

„Það var fólk sem hringdi í mig og sagði mér að detta á Wembley því þeir þurftu fréttir af mér,”

„Ég gerði þetta af ásettu ráði svo að þið, fjölmiðlar, gætuð talað aðeins meira um mig,” en aðspurður hvort hann hafi meitt sig svaraði stjórinn:

„Nei. Þetta var dýfa og ég kom símanum mínum til bjargar. Ekki víti og kannski gult spjald,” sagði Portúgalinn og brosi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×