Fótbolti

Insigne hetja Napoli í naumum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Insigne fagnar sigurmarkinu
Insigne fagnar sigurmarkinu vísir/getty
Napoli fékk Fiorentina í heimsókn í ítölsku úrvalsdeildinni í dag en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn með sex stig og voru gestirnir enn taplausir þegar kom að leiknum í dag.

Ansi mikið jafnræði var með liðunum stærstan hluta leiksins þó Napoli hafi stjórnað leiknum.

Skömmu fyrir leikslok reyndist ítalski landsliðsmaðurinn Lorenzo Insigne munurinn á liðunum en hann gerði eina mark leiksins á 79.mínútu eftir undirbúning Arek Milik.

Fyrsta tap Fiorentina staðreynd en Napoli hefur níu stig eftir fjóra leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×